Fótbolti

Wenger fékk ósk sína ekki uppfyllta

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Arsenal fær erfitt verkefni.
Arsenal fær erfitt verkefni. Vísir/Getty
Arsenal datt ekki í lukkupotinn er það var dregið í undanúrslit Evropudeildar UEFA í morgun.

Arsenal dróst gegn spænska stórliðinu Atletico Madrid en enska liðið fær þó seinni leikinn á heimavelli. Arsene Wenger, stjóri Arsenal, fór ekkert leynt með það í gær að hann vildi sleppa við Atletico í undanúrslitunum.

Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Marseille og Salzburg.

Fyrri leikirnir fara fram 26. apríl og seinni leikirnir 3. maí.

Undanúrslitin:

Marseille - Salzburg

Arsenal - Atletico Madrid




Fleiri fréttir

Sjá meira


×