Innlent

Bein útsending: Hvernig má styðja við læsi barna?

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Frá vinstri: Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Freyja Birgisdóttir,  Dröfn Rafnsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir.
Frá vinstri: Þóra Sæunn Úlfsdóttir, Freyja Birgisdóttir, Dröfn Rafnsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. Mynd/Kristinn Ingvarsson
Á fundinum Hvernig má styðja við læsi barna? sem fer fram í hádeginu í dag verður fjallað um hvernig foreldrar geta á markvissan hátt skapað ríkulegt mál- og læsisumhverfi fyrir börnin sín og ýtt undir áhuga þeirra á lestri. Sýnt verður beint frá fundinum hér á Vísi og má fylgjast með útsendingunni frá klukkan 12 í spilaranum hér að neðan.

Erindið er hluti af fyrirlestraröðinni Best fyrir börnin. Erindið fer fram í dag, þriðjudaginn 17. Apríl, klukkan 12 til 13.15 í Hátíðasal Háskóla Íslands.

Á fundinum ræða þær Freyja Birgisdóttir, dósent við Sálfræðideild Háskóla Íslands, Sigríður Ólafsdóttir, nýdoktor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Dröfn Rafnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Miðju máls og læsis hjá Reykjavíkurborg, og Þóra Sæunn Úlfsdóttir, talmeinafræðingur og læsisrágjafi hjá Miðju máls og læsis, um árangursríkar leiðir til að auka lestur barna og ungmenna.

Uppfært klukkan 13:15

Beinni útsendingu er lokið en upptöku frá fundinum má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×