Bíó og sjónvarp

Arftaki SKAM var óvænt frumsýndur um helgina

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Myndirnar eru fengnar af Instagram-reikningum aðalpersónanna þriggja, Ellu, Susanne og Mats.
Myndirnar eru fengnar af Instagram-reikningum aðalpersónanna þriggja, Ellu, Susanne og Mats. Mynd/Samsett
Norska ríkissjónvarpið NRK frumsýndi óvænt nýja þáttaröð í anda norsku vefþáttaraðarinnar SKAM aðfararnótt sunnudags nú um helgina. Mikil leynd hvíldi yfir framleiðslu þáttanna sem sýndir eru á vef NRK P3.

Þáttaröðin SKAM kvaddi í fyrra á hátindi vinsælda sinna, og er áfallið aðdáendum þáttanna eflaust í fersku minni. Téðir aðdáendur geta hins vegar tekið gleði sína á ný en eins og áður sagði minnir hin nýja sería, sem ber heitið Blank, um margt á SKAM.

Sjá einnig: Þetta tekur við hjá stjörnunum í SKAM

Umfjöllunarefnið er, sem áður, norskir unglingar í Ósló, þó að persónurnar í Blank séu nokkuð eldri en Noora, Eva, Isak og félagar þeirra.

Aðalpersóna þáttanna er hin 19 ára Ella sem hefur nýlokið námi við VGS-framhaldsskólann í Ósló, að því er fram kemur á vef NRK. Í þáttunum er fylgst með lífi Ellu og bestu vinkonu hennar, Susanne, auk Mats, kærasta Ellu. Aðdáendur geta fylgt persónunum á Instagram, líkt og boðið var upp á í SKAM.



 
Finn 0 feil

A post shared by Ella Correia Midjo (@ellamidjo) on Apr 13, 2018 at 10:16am PDT

Þá er hægt að fylgjast með gangi þáttanna á heimasíðu norska ríkisútvarpsins en þar eru auk þess birtar klippur, SMS-samskipti persónanna og fleira efni úr þáttunum. Þættirnir sjálfir koma svo út á sunnudögum.

Mikil leynd hvíldi yfir framleiðslu þáttanna, þeir hafa ekkert verið auglýstir, og kom útgáfa þeirra Norðmönnum í opna skjöldu, að því er fram kemur í umfjöllun NRK. Svipaður háttur var hafður á við framleiðslu SKAM á sínum tíma en aðstandendur þáttanna gáfu ekkert uppi um ferlið áður en þættirnir voru sýndir.

Þá var greint frá því á dögunum að önnur unglingasería í anda SKAM yrði frumsýnd á vef NRK. Sú ber heitið Lovleg og gerist, líkt og SKAM, í menntaskóla en að þessu sinni í afskekkta bænum Sandane í Noregi. Tökur á þeim hefjast í sumar.


Tengdar fréttir

SKAM stjarna í erótískum spennutrylli

Tarjei Sandvik Moe sem fór með hlutverk Isaks í norsku unglingaþáttunum SKAM mun heldur betur bregða sér í nýtt hlutverk í erótíska spennutryllinum "Ástarsamband"

Hittu leikarana úr Skam

Vilhjálmur og Katrín, hertogaynja af Cambrigde hittu að sjálfsögðu leikarana í vinsælasta þætti Norðmanna í ferð sinni til Osló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×