Lífið

Segir lag Ara henta fyrir Eurovision árið 2003

Stefán Árni Pálsson skrifar
Angus, William og Chris ekkert sérstaklega hrifnir.
Angus, William og Chris ekkert sérstaklega hrifnir.
Fjallað er um lag Ara Ólafssonar, Our Choice, á bloggsíðunni Wiwi Bloggs en síðan er ein allra virtasta Eurovision síða í Evrópu. Þar eru öll lögin í keppninni skoðuð og lagt mat á þau.

Ari Ólafsson stígur á sviðið í Lissabon á fyrra undanúrslitakvöldinu þann 8. maí í Lissabon og er hann annar í röðinni á þriðjudagskvöldinu.

Ísland hefur ekki komið upp úr undanriðlinum þrjú ár í röð og spá veðbankar því að Ari Ólafsson fari ekki áfram að þessu sinni.

Þeir Angus, William og Chris byrjuðu yfirferð sína á því að syngja part úr laginu og heyrist strax af hverju þessir menn eru að fjalla um Eurovision, en ekki taka sjálfir þátt.

„Hann er með rosalegt raddsvið og eðlilega sýnir hann það í laginu. Þessi strákur getur svo sannarlega sungið,“ segir William um Ara og heldur síðan áfram: „Lagið er algjörlega fullkomið í Eurovision 2003 og er það frekar úrelt. Aftur á móti þegar hann syngur lagið, þá finnur maður hvað hann hefur mikla trú á því. Söngvarinn er mjög heillandi en lagið er of væmið fyrir minn smekk.“

William segir einfaldlega að lagið sé ekki hans tebolli.

„Þetta er svolítið Disney-lag enda lítur Ari út eins og Disney-prins. Þessi strákur getur sannarlega sungið en ég held að þau hefðu átt að halda sig við íslensku útgáfuna, mér finnst hún betri,“ segir Angus.

„Lagið hefur frábæran boðskap en mér finnst þýðingin úr íslensku yfir í ensku ekki virka. Enska útgáfan er bara of einfaldur texti, því miður. Lagið gæti reyndar heillað fólk sem talar ekki ensku og skilur kannski ekki tungumálið, það er möguleiki. Ari er frábær en stundum er það ekki nóg,“ segir Chris.

Einkunnir drengjanna:

Angus 3,5

William 2

Chris 3






Fleiri fréttir

Sjá meira


×