Fótbolti

Lið í þriðju deild spilar til bikarúrslita

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Leikmenn Les Herbiers fagna
Leikmenn Les Herbiers fagna visir/getty
Þriðju deildar liðið Les Herbiers komst í gærkvöld í úrslit frönsku bikarkeppninnar í fótbolta. Stórveldið PSG gæti orðið andstæðingurinn í úrslitaleiknum.

Les Herbiers mætti félögum sínum úr þriðju deildinni, Chambly, í undanúrslitunum. Florian David og Ambroise Gboho skoruðu mörk Les Herbiers sem sigraði 2-0.

PSG mætir Caen, sem spilar í efstu deild líkt og PSG, í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld.

Það virðist þó ekki vera eins óalgengt og halda mætti að lið úr þriðju deildinni komist í úrslit bikarkeppninnar, en það gerði Quevilly árið 2012.

Þetta er hins vegar í fyrsta skipti í sögu Les Herbiers sem liðið fer í úrslit bikarkeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×