Viðskipti innlent

Ríkið bíður enn eftir milljarða greiðslu Byrs

Hörður Ægisson skrifar
Stærstu hluthafar Byrs eru þýskir bankar og sparisjóðir.
Stærstu hluthafar Byrs eru þýskir bankar og sparisjóðir. Vísir/Stefán
Gamli Byr, sem lauk nauðasamningum í janúar 2016, hefur enn ekki getað greitt stöðugleikaframlag til íslenska ríkisins sem yrði að óbreyttu rúmlega tveir milljarðar króna sökum ágreinings við Íslandsbanka um virði útlánasafns sem bankinn keypti af Byr og ríkissjóði haustið 2011. Íslandsbanki, sem er alfarið í eigu ríkisins, telur að ofmat á verðmæti lánasafnsins hafi valdið bankanum fjártjóni og hefur krafist þess að Gamli Byr og ríkissjóður greiði bankanum skaðabætur upp á 7,7 milljarða króna auk vaxta. Bankinn borgaði samtals 6,6 milljarða á sínum tíma fyrir allar eignir Byrs.

Í greinargerð sem Byr lagði fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í byrjun árs er meðal annars vakin athygli á því að Íslandsbanki hafi viðurkennt í júlí 2017 að hafa veitt dómkvöddum matsmönnum rangar upplýsingar um tryggingar og greiðsluflæði þeirra lána sem þeim var ætlað að gefa álit á til að meta meint fjártjón bankans. ViðskiptaMogginn greindi frá því í síðasta mánuði að bankinn hefði lagt fyrir matsmennina gögn sem gáfu til kynna að 993 lán sem hann tók yfir með kaupunum hefðu verið án trygginga. Í ljós hafi hins vegar komið að tryggingar lágu að baki nær öllum lánanna.

Þá segir í greinargerðinni, sem Markaðurinn hefur undir höndum, að í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið PwC gerði fyrir Byr á grundvelli þeirra gagna sem Íslandsbanki lagði fram hafi eins verið sýnt fram á að bankinn hefði í mörgum tilfellum tekið til sín tryggingar sem voru að baki lánum Byrs. Þannig hafi hann ráðstafað þeim inn á eigin kröfur án þess að færa Byr til tekna þau verðmæti sem komu í stað trygginganna. Ekki hafi verið unnt að fullyrða, byggt á þeim gögnum sem voru fáanleg, hver sú fjárhæð hafi samtals verið en þó megi ætla að hún nemi tugum milljóna króna. Íslandsbanki hafnaði þessum athugasemdum PwC í „öllum megindráttum“ og segir að tryggingarnar hafi að mestu réttilega tilheyrt bankanum, en ekki Byr.

Skoða að krefjast rannsóknar

Gestur Jónsson, lögmaður Byrs, staðfestir í samtali við Markaðinn að félagið hafi í kjölfar þess að upp komst um að Íslandsbanki hafi veitt matsmönnunum rangar upplýsingar séð ástæðu til að skrifa bréf til stjórnar bankans í september í fyrra til að vekja athygli á vinnubrögðum hans í málinu. Aðspurður segir hann að það hafi verið til skoðunar hjá Gamla Byr að krefjast rannsóknar á því hvernig það kom til að Íslandsbanki lagði fram rangar upplýsingar sem grundvöll að meintu tjóni og hver beri ábyrgð á því. Með þessu móti hafi bankinn getað fengið til sín verðmæti sem hann hafi ekki átt tilkall til.

Gestur segir að Gamli Byr hafi óskað eftir því við Íslandsbanka að hann veiti aðgang að réttum upplýsingum um innheimtu alls lánasafns Byrs, aðgang að niðurstöðum áreiðanleikakönnunar sem bankinn vann á verðmæti eigna Byrs og geri jafnframt grein fyrir gangvirðismati sem hann gerði vegna samruna Byrs og Íslandsbanka. 

Gestur Jónsson lögmaður
Það skjóti skökku við, útskýrir Gestur, að bankinn hafi sjálfur metið útlánasafnið á rúmlega 80 milljarða seinni hluta ársins 2011 þegar hann færði niður keypta viðskiptavild Byrs um 17 milljarða en fari nú fram á að fá 7 milljarða greidda til baka vegna þess að safnið hafi ekki staðið undir væntingum um 90 til 95 milljarða.

Gamli Byr hefur krafist þess að Íslandsbanki felli dómsmálið niður hið fyrsta en bankinn hefur sagst vilja bíða eftir því að hinir dómkvöddu matsmenn, sem hafa unnið að virðis­matinu frá 2013 og fengið greitt á annað hundrað milljóna króna fyrir þá vinnu, ljúki verki sínu.



Forviða á vinnubrögðum

Kröfuhafar Byrs, að stærstum hluta þýskir bankar og sparisjóðir sem eru upprunalegir lánveitendur sparisjóðsins, eru sagðir forviða á vinnubrögðum Íslandsbanka, að sögn þeirra sem þekkja vel til málsins. Þeir hafi lengst af sýnt því skilning að bankinn eigi rétt á því að bera ágreining sinn undir dómstóla enda þótt þeir hafi undrast málatilbúnaðinn. Það eigi ekki síst við með hliðsjón af því að stór fjármálastofnun eins og Íslandsbanki, sem framkvæmdi eigin áreiðanleikakönnun við kaup á mun minna fjármála­fyrirtæki skuli krefjast skaðabóta með þeim rökum að virði útlánasafns, sem var yfirtekið skömmu eftir fordæmalaust fjármála- og efnahagshrun, hafi ekki verið í samræmi við væntingar. Steininn hafi hins tekið úr fyrir um ári þegar uppvíst varð um ranga upplýsingagjöf Íslandsbanka sem hefði getað leitt til þess að bankinn hefði auðgast með ólögmætum hætti á kostnað annarra kröfuhafa og hluthafa Gamla Byrs.

Það mál sem nú er rekið fyrir dómstólum hefur tafið verulega lok slitameðferðar Gamla Byrs og þar með um leið komið í veg fyrir útgreiðslur til hluthafa. Þá hefur Gamli Byr, sem fyrr segir, enn ekki getað innt af hendi stöðugleikaframlag sitt til íslenska ríkisins sem er áætlað að eigi að óbreyttu að verða rúmlega tveir milljarðar króna, samkvæmt upplýsingum Markaðarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×