Lífið

Zlatan aldrei verið kokhraustari en hjá Kimmel: „Ég kom Svíþjóð á kortið“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Zlatan er greinilega með mikið sjálfstraust.
Zlatan er greinilega með mikið sjálfstraust.
Zlatan Ibrahimovic, leikmaður LA Galaxy, í bandarísku MLS-deildinni mætti í spjallþátt Jimmy Kimmel í gær.

Zlatan keypti á dögunum heilsíðu auglýsingu í LA Times þar sem einfaldlega stóð: „Verði ykkur að góðu. Kveðja, Zlatan Ibrahimovic.“

„Ég er ekki týpískur sænskur gaur en ég kom samt Svíþjóð á kortið,“ sagði Zlatan við Kimmel.

Í fyrsta leiknum með LA Galaxy skoraði Zlatan svakalegt mark og hefur farið gríðarlega vel af stað hjá félaginu. Hér að neðan má sjá viðtalið við Zlatan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×