Ronaldo bjargaði stigi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ronaldo hefur skorað og skorað fyrir Real á síðustu misserum
Ronaldo hefur skorað og skorað fyrir Real á síðustu misserum vísir/getty
Cristiano Ronaldo tryggði Real Madrid stig gegn Athletic Bilbao með jöfnunarmarki á síðustu mínútunum.

Eftir að hafa ráðið ferðinni frá fyrstu mínútu fékk Real blauta tusku í andlitið þegar Inaki Williams skoraði fyrir Bilbao á 13. mínútu.

Real sótti og sótti að marki Bilbao, Spánarmeistararnir fráfarandi áttu 29 skot að marki og þar af fóru 10 á markrammann. Þeim varð þó ekkert upp úr erfiði sínu fyrr en á 87. mínútu þegar Cristiano Ronaldo stýrði skoti Luka Modric í netið.

Ronaldo er nú kominn með 46 mörk fyrir Real á tímabilinu í öllum keppnum.

Real Madrid er í þriðja sæti spænsku deildarinnar með 68 stig eftir 33 leiki, 15 stigum á eftir Barcelona.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira