Körfubolti

Ægir öflugur þegar Castello tapaði með minnsta mun

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson
Ægir Þór Steinarsson vísir/ernir
Ægir Þór Steinarsson fór mikinn í liði Castello þegar liðið heimsótti Valladolid í spænsku B-deildinni í körfubolta í dag.

Ægir skoraði fimmtán stig, gaf átta stoðsendingar og tók eitt frákast en það dugði ekki til sigurs í þetta skiptið því heimamenn unnu leikinn með einu stigi, 98-97.

Ægir og félagar eru í sjötta sæti deildarinnar þegar fjórar umferðir eru eftir af deildarkeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×