Fótbolti

Fólkið vildi Zlatan svo ég færði þeim Zlatan

Arnar Geir Halldórsson skrifar
MLS er orðið að MLZ
MLS er orðið að MLZ vísir/getty
Sænska goðsögnin Zlatan Ibrahimovic er svo sannarlega byrjaður að láta til sín taka í Bandaríkjunum en hann átti algjörlega magnaða innkomu í lið LA Galaxy í gær.

Zlatan var tiltölulega nýmættur til Los Angeles og hafði aðeins mætt á eina æfingu með liðinu þegar kom að leiknum í gær. Hann hafði heldur ekki komið við sögu hjá Man Utd síðan á öðrum degi jóla en það var ekki að sjá að Svíinn væri ryðgaður í frumraun sinni með LA Galaxy.

Hann kom inná þegar Galaxy var tveimur mörkum undir og tuttugu mínútur eftir af leiknum.

,,Ég heyrði stuðningsmennina syngja ,,Við viljum Zlatan, við viljum Zlatan” svo ég ákvað að færa þeim Zlatan. Þeir voru að ýta á eftir mér og ég gaf þeim til baka,”

,,Það er mín saga að skora þegar ég kem í nýtt lið. Ég skora alltaf í fyrsta leiknum. Ég vildi ekki valda vonbrigðum núna,” segir Zlatan.

 


Tengdar fréttir

Blaðamaður í LA líkir Zlatan við Muhammad Ali

Sænska knattspyrnustjarnan Zlatan Ibrahimovic er mættur til Los Angeles til að spila með liði Galaxy og í Hollywood borginni fá nú stórstjörnurnar jafnan að njóta sín.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×