Körfubolti

Martin hafði betur gegn Hauki

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Martin í baráttunni fyrr í vetur.
Martin í baráttunni fyrr í vetur. vísir/getty
Martin Hermannsson hafði betur gegn Hauki Helga Pálssyni í Íslendingaslag í frönsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Martin, sem hefur farið á kostum með liði Chalons-Reims í vetur, hafði nokkuð hægt um sig í dag, skoraði 7 stig og tók 3 fráköst.

Haukur Helgi var annar stigahæstu manna í liði Cholet. Hann skoraði 12 stig, líkt og Jonathan Rouselle, og tók eitt frákast.

Chalons-Reims sigraði leikinn með 89 stigum gegn 73. Eftir jafnan fyrsta leikhluta komust heimamenn í átta stiga forystu fyrir hálfleikinn og unnu svo þriðja leikhlutann með fimm stigum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×