Skoðun

Bara einu sinni?

Bjarni Karlsson skrifar
Fyrir skömmu varð andlát í stórfjölskyldunni og fjögurra ára nafni minn hefur orðið nokkuð hugsi. Um daginn var hann í fjallgöngu með mömmu sinni og spurði: Af hverju er fólk sett ofan í jörðina þegar það er dáið? Hún tjáði honum að það væri kannski gott að leyfa líkamanum að sameinast jörðinni og gróðrinum þegar við gætum ekki lengur notað hann. Eftir fleiri stutt skref í glaðri páskasól kom næsta spurning: Lifir maður þá bara einu sinni? Þá fékk hann að heyra söguna um Jesú þegar hann hitti vini sína eftir upprisuna. Viska trúarinnar víkur sér ekki undan veruleikanum en slær fáu föstu.

Þegar Sigurbjörn Einarsson biskup var orðinn aldraður og hafði látið af embætti var hann eitt sinn í viðtali á einhverjum ljósvakamiðlinum. Þáttarstjórinn hafði orð á því að nú væri hann orðinn eldri maður og spurði hvort hann kviði dauðanum? Já, svaraði biskupinn, og það sem verra er, ég veit ekkert hvað tekur við. Það kom heldur á spyrilinn en Sigurbjörn brosti með glampa í augum og mælti: En ég veit hver tekur við, og það nægir mér.

Kristin upprisutrú er ekki hugmyndakerfi heldur reynsla af nærveru. Líkt og foreldri huggar barn með nálægð sinni þannig er hinum trúaða huggun og styrkur af nærveru Guðs sem hvarvetna birtist, í hjarta manns jafnt sem náttúrunni og öðru fólki. Þess vegna er kristin kirkja ekki í prósentukeppni við Siðmennt um skírnir og fermingar eins og nú er hampað, en biður þess að hvert barn fái að vita að við erum öll bræður og systur og þau séu frjáls að efast og trúa á góðan Guð sem elskar allt sem lifir. Hin trúuðu halda ekki að þau séu handhafar sannleikans en þau lifa í þeirri viðleitni og von að sannleikurinn hafi hönd á þeim svo þau megi láta gott af sér leiða.




Skoðun

Sjá meira


×