Innlent

Sólskin í dag en fimbulkuldi í nótt

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Svona er staðan á hádegi í dag.
Svona er staðan á hádegi í dag. Veðurstofan
Sólin mun skína glatt sunnan- og vestanlands í dag og mun hitinn þar jafnvel gægjast uppfyrir frostmarkið ef marka má spá Veðurstofunnar þennan morguninn. Þá er jafnframt útlit fyrir minnkandi norðanátt.

Í norðausturfjórðungi landsins má búast við vægu frosti og éljum, en að sögn veðurfræðings verða þau smám saman strjálli og efnisminni þegar kemur fram á daginn. Það verður svo orðið hæglætisveður á mestöllu landinu í kvöld og lítið af skýjum. Við þær aðstæður nær frostið sér á strik og býst Veðurstofan við tveggja stafa frosttölum í flestum landshlutum í nótt. Hitinn verður að 5 stigum yfir daginn sunnan heiða, en vægt frost fyrir norðan og austan.

Útlit er fyrir rólegt og bjart veður sunnan- og austantil á landinu á morgun. Spár gera þá ráð fyrir að dálítil lægðabóla láti á sér kræla úti fyrir Vestfjörðum. „Af hennar völdum má búast við suðvestan kalda eða jafnvel strekkingi eftir hádegi um landið norðvestanvert og dálítil él með, einnig gæti orðið vart við lítilsháttar él á Faxaflóasvæðinu,“ útskýrir veðurfræðingur.

Helgin virðist ætla að verða fremur róleg í veðrinu, lítil eða engin úrkoma er í kortunum og allir landshlutar fá bjarta kafla. Áfram má þó búast við næturkulda.

Veðurhorfur á landinu næstu daga



Á föstudag:

Hæg breytileg átt, en vestan 8-13 m/s norðvestantil á landinu. Dálítil él vestanlands og einnig á Norðurlandi um kvöldið, en léttskýjað í öðrum landshlutum. Hiti að 5 stigum sunnanlands yfir daginn, annars frost 1 til 6 stig. 

Á laugardag:

Vestlæg átt 3-8 og víða bjartviðri, en 8-13 með norðurströndinni og lítilsháttar él. Hiti breytist lítið. 

Á sunnudag:

Austan og suðaustan 3-8 og víða léttskýjað, en 8-13 með suðurströndinni og skýjað. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en vægt frost í innsveitum fyrir norðan. 

Á mánudag:

Hæg austlæg átt, en 5-10 með suðurströndinni. Lítilsháttar skúrir eða él á Suðausturlandi og Austfjörðum, en þurrt og bjart annars staðar á landinu. Hiti svipaður. 

Á þriðjudag:

Fremur hæg suðlæg átt og bjartviðri, en sunnan 8-13 vestast á landinu og smáskúrir. Hiti 1 til 6 stig, en kringum frostmark norðaustanlands. 

Á miðvikudag:

Líkur á sunnanátt með rigningu og súld, en þurrt að kalla á Norður- og Austurlandi. Hlýnar talsvert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×