Innlent

Eitraðan reyk leggur yfir íbúabyggð í Hafnarfirði og á Álftanesi

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Vísir
Stórbruni í Garðabæ veldur því að eitraðan reyk leggur yfir íbúabyggð í Hafnarfirði og á Álftanesi og verið er að rýma hús í nágrenninu. Fólk er beðið að halda sig innandyra, loka gluggum og hækka hitastigið ef það verður vart við reyk.

Bæði slökkvilið og lögregla eru á staðnum, auk annarra viðbragðsaðila, og er fólk vinsamlegast beðið að halda sig fjarri brunavettvangi, bæði vegna hugsanlegrar eitrunar og einnig til að gera viðbragðsaðilum kleift að vinna sína vinnu.

Vísir er á vettvangi og má sjá beina útsendingu og beina lýsingu frá staðnum hér.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×