Golf

Fór úr lið á ökkla en leiddi Masters sólarhring seinna

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ökklinn virtist  ekki trufla Finau mikið í gær
Ökklinn virtist ekki trufla Finau mikið í gær visir/getty
Þegar Tony Finau lauk leik á fyrsta hring Mastersmótsins í golfi í gær leiddi hann mótið ásamt landa sínum Jordan Spieth á fjórum höggum undir pari.

Það er ákveðið afrek í sjálfu sér hjá Bandaríkjamanninum sem er í 34. sæti heimslistans í golfi. Það sem gerir þetta hins vegar enn magnaðara er að aðeins tæpum sólahring fyrr fór hann úr ökklalið á golfvellinum.

Finau fór holu í höggi á sjöundu holu í par 3 keppninni sem haldin var í undirbúningi fyrir Mastersmótið á miðvikudag. Þegar hann fagnaði högginu náði hann að fara úr lið á ökkla en hann beygði sig niður og ýtti ökklanum aftur í lið.

Hann virtist hafa verið eftir sig eftir meiðslin og hætti keppni í par 3 keppninni og var óvíst hvort hann færi yfir höfuð á stað í gærmorgun.

Hann gerði þó gott betur en það, spilaði hringinn á fjórum höggum undir pari með sex fugla og tvo skolla.





Hér fyrir neðan má sjá atvikið, myndbandið er ekki fyrir viðkvæma.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×