Sport

Búið að ákæra Conor McGregor

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Conor þarf að hitta dómara í dag og gengur út með bunka af kærum.
Conor þarf að hitta dómara í dag og gengur út með bunka af kærum. vísir/getty
Lögreglan í New York hefur haft hraðar hendur í máli Conor McGregor sem gekk berserksgang í Brooklyn í gær.

Þó svo það sé enn nótt í New York er búið að ákæra Conor fyrir árás sem og hafa brotið allt og bramlað í Barclays Center í gær. Conor mun þurfa að mæta fyrir dómara klukkan 11 í fyrramálið þar sem honum verða birtar ákærur.

Lögreglan leitaði Írans eftir að hann flúði af vettvangi í gær. Hann gaf sig svo fram við lögregluna klukkan eitt í nótt og situr enn í steininum.

Hér að neðan má sjá Conor brjóta rúðu í rútunni þar sem helmingur bardagakappanna á UFC 223 sat. Tveir bardagakappanna slösuðust við það og geta ekki barist.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×