Erlent

Skrípal sagður á batavegi

Kjartan Kjartansson skrifar
Sergei Skrípal þegar réttar var yfir honum vegna njósna árið 2006.
Sergei Skrípal þegar réttar var yfir honum vegna njósna árið 2006. Vísir/AFP
Læknar Sergei Skrípal, rússneska fyrrverandi njósnarans sem eitrað var fyrir í mars, segja að hann sé á batavegi og sýni nú góð viðbrögð við meðferð. Honum hafði áður vart verið hugað líf. Dóttir hans sem varð einnig fyrir eitrinu er einnig öll að koma til.

Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir Christine Blanshard, lækni við sjúkrahúsið í Salisbury, að Skrípal sé ekki lengur í lífshættu. Ástand hans hafi batnað hratt.

Rússneska sendiráðið í Bretlandi fagnaði tíðindum í tísti. Bresk stjórnvöld hafa sakað Rússa um að hafa staðið að árásinni með taugaeitrinu Novichok. Rússar hafa hafnað þeim ásökunum.

Skrípal-feðginin hafa legið þungt haldin á sjúkrahúsi frá því að þau fundust meðvitundarlaus á bekk í miðbæ Salisbury 4. mars. Skrípal hafði verið rússneskur leyniþjónustumaður sem var hnepptur í fangelsi í heimalandinu fyrir njósnir í þágu Breta. Hann fékk að fara til Bretlands í fangaskiptum árið 2010.

Í gær var greint frá því að Júlía Skrípal, 33 ára gömul dóttir Sergei, væri komin til meðvitundar og gæti tjáð sig. Blanshard sagði í dag að Júlía hefði óskað eftir því að fjölmiðla létu hana í friði á meðan hún væri að ná sér.

Taugaeitursárásin hefur hleypt mikilli spennu í samskipti Breta og vestrænna ríkja annars vegar og Rússa hins vegar. Ríkin hafa skipst á að reka erindreka hvers annars úr landi vegna árásarinnar.

Svo hættulegt er taugaeitrið sem notað var í árásinni að bresk yfirvöld gera ráð fyrir því að það muni taka fram á sumarið 2019 að ljúka hreinsunarstarfi í Salisbury.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×