Viðskipti innlent

Steyptu bæði stjaka og kerti

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Frumkvöðlarnir Ásdís Ágústsdóttir, Nína Melsted Margrétardóttir, Margrét Stella Kaldalóns Sigurðardóttir, Emilía Katrín Böðvarsdóttir, Helga Lena Garðarsdóttir og Lára Sif Davíðsdóttir kynna framleiðslu sína í Smáralind í dag.
Frumkvöðlarnir Ásdís Ágústsdóttir, Nína Melsted Margrétardóttir, Margrét Stella Kaldalóns Sigurðardóttir, Emilía Katrín Böðvarsdóttir, Helga Lena Garðarsdóttir og Lára Sif Davíðsdóttir kynna framleiðslu sína í Smáralind í dag. Fréttablaðið/Ernir
Sex bekkjarsystur úr Versló kynna eigin vörur í dag í fyrsta skipti. Það eru ilmkerti í steyptum stjökum sem þær gerðu með eigin höndum. Ein stúlknanna er Helga Lena Garðarsdóttir.

„Við verðum í Smáralind milli klukkan 11 og 18 í dag ásamt mörgum framhaldsskólanemum sem taka þátt í verkefnum á vegum frumkvöðlasamtakanna Junior Achievements. Svo verða aðrir á morgun,“ segir Helga Lena og lýsir ferlinu sem þær stöllur hafa farið í gegnum sem hún segir hafa verið lærdómsríkt.

„Við erum í frumkvöðlaáfanga í Versló og þar stofnuðum við fyrirtækið Rökkva Reykjavík. Það er dálítið ferli, byrjuðum á að greiða stofnunargjald, stofna reikning, skrá fyrirtækið og finna nafn sem ekki var frátekið. Leituðum að sterku kvenmannsnafni og Rökkva varð fyrir valinu því við erum með ilmkerti sem henta vel þegar fer að rökkva. Svo er svo íslenskt að vera með ö í nafninu.“

Helga Lena segir sérstöðu framleiðslunnar vera þá að ílátin undir kertin séu úr steinsteypu. „Við höfum ekki séð svoleiðis á markaðinum áður. Við steyptum stjakana sjálfar úr steypu frá BM Vallá, og það tók alveg á.“ Hún segir þær hafa verið svo heppnar að ein úr hópnum búi í hálfbyggðu húsi í Úlfarsárdal og þar hafi þær getað verið með steypuna. „Svo fórum við með stjakana í bílskúr heima hjá annarri. Þar bræddum við vaxið og helltum því í, mamma einnar í hópnum seldi okkur efni í það, hún flytur það inn og er með kertanámskeið. Þetta var heilmikið stúss.“

Þá var eftir að finna umbúðirnar. „Við fórum í fyrirtæki í Hafnarfirði sem heitir Spírall og þar voru til pappakassar sem fyrir tilviljun pössuðu utan um kertin. Síðan hönnuðum við lógó, létum prenta þau á límmiða sem við límdum á kassana. Þetta eru innikerti, útlitið er vissulega dálítið hrátt en þannig viljum við hafa þau.“








Fleiri fréttir

Sjá meira


×