Fótbolti

Meistari sjötta tímabilið í röð og er enn bara 21 árs gamall

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kingsley Coman.
Kingsley Coman. Vísir/Getty
Franski knattspyrnumaðurinn Kingsley Coman er á sínu sjötta ári í atvinnumennsku og hann þekkir ekkert annað en að vera meistari með sínu liði.

Kingsley Coman og félagar hans í Bayern München tryggðu sér þýska meistaratitilinn um helgina með sigri á Alfreð Finnbogasyni og liðfélögum hans í Augsburg.

Coman var þarna að verða þýskur meistari þriðja árið í röð en hann kom til þýska stórliðsins á láni í ágúst 2015. Bayern gekk frá kaupunum á Frakkanum fyrir þetta tímabil en fyrstu tvö tímabilin hans í Bæjaralandi var hann á lánssamning.

Meistaratitlarnir á ferlinum eru þó tvöfalt fleiri en þessir hjá Bæjurum því Kingsley Coman varð einnig tvisvar franskur meistari Paris Saint-Germain og einu sinni ítalskur meistari með Juventus.





Eina tímabilið hjá Kingsley Coman þar sem hann hefur ekki verið meistari var 2015-16 tímabilið með Juventus þar sem hann spilaði aðeins einn leik í upphafi móts. Juventus lánaði hann þá til Bayern og hann vann þýska titilinn í fyrsta sinn vorið eftir.

Hann varð því meistari það tímabil eins og hin fimm á atvinnumannaferlinum til þessa. Það er ótrúleg staðreynd fyrir leikmann sem er fæddur árið 1996 og verður ekki 22 ára fyrr en 13. júní næstkomandi.

Bayern München hefur unnið þýsku deildina sjötta árið í röð og sigurgangan er líkleg til að halda áfram. Kingsley Coman skrifaði nýverið undir samning til 2023 og ætti því að geta orðið þýskur meistari mörgum sinnum í viðbót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×