Lífið

Sjáðu atriðið sem varð Sölva og Ástrós að falli

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Ég átti miklu meira von á því að fara heim síðast og átti í raun ekki von á því í kvöld,“ segir Sölvi Tryggvason eftir að það var ljóst að hann færi heim úr Allir geta dansað ásamt Ástrós Tryggvadóttur. Í þættinum í gær dönsuðu þau Vínarvals.

„Það er líka búið að vera erfitt að horfa á eftir hinum keppendum og ég get því alveg tekið þetta á mig eins og hver annar. Ástrós hefur verið frábær kennari og ótrúlega þolinmóð. Ef ég set mig í hennar spor. Að vera rosalega góður í einhverju og að þurfa kenna einhverjum sem er algjör nýgræðingur, þá er það sennilega mjög erfitt og hún hefur ábyggilega stundum hugsað af hverju ég gæti bara ekki lært þetta,“ segir Sölvi en þau fara bæði sátt úr þættinum.

Hér að ofan má sjá viðtalið við dansparið en hér að neðan má sjá atriðið þeirra frá því í gærkvöldi. Neðst í fréttinni má síðan sjá myndasyrpu frá gærkvöldinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×