Körfubolti

Finnur hefur aldrei áður verið í þessari stöðu með KR-liðið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Finnur Freyr Stefánsson hefur gert KR liðið fjórum sinnum að Íslandsmeisturum.
Finnur Freyr Stefánsson hefur gert KR liðið fjórum sinnum að Íslandsmeisturum. Vísir/Bára
Íslandsmeistarar KR hafa spilað 52 leiki og unnið fjóra Íslandsmeistaratitla í úrslitakeppni undir stjórn Finns Freys Stefánssonar en enginn þessara leikja hefur verið spilaður við sömu aðstæður og í kvöld.

Íslandsmeistarar KR eiga á hættu að lenda 2-0 undir í kvöld í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Haukum en Haukarnir koma þá í heimsókn í Vesturbæinn.

Leikur KR og Hauka hefst klukkan 19.15 en leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Haukar unnu fyrsta leik liðanna á Ásvöllum og þetta er í fyrsta sinn í fimm ár þar sem KR-liðið kemst ekki í 1-0 í einvígi í úrslitakeppninni.

Fyrir þetta einvígi þá var KR-liðið búið að komast í 1-0 í þrettán einvígum í röð eða í öllum einvígum þar sem Finnur Freyr Stefánsson hefur stýrt liðinu.

Finnur Freyr þarf nú að kynnast því í fyrsta sinn sem þjálfari karlaliðs KR að fara í leik þar sem lið hans getur lenti 2-0 undir.

KR-liðið lenti síðast 1-0 undir á móti Grindavík í undanúrslitunum 2013.

KR náði að jafna með því að vinna leik tvö á heimavelli 90-72 en Grindvíkingar unnu næstu tvo leiki og þar sem einvígið 3-1.

Grindvíkingar fóru síðan alla leið og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn eftir sigur á Stjörnunni í lokaúrslitunum.

Síðan þá hefur KR unnið alla fjóra Íslandsmeistaratitlanum í boði en liðið reynir nú að verða fyrsta félagið í sögu úrslitakeppninnar sem nær að vinna fimm Íslandsmeistaratitla í röð.

KR í 1-0 í þrettám einvígum í röð

2014

8 liða úrslit: 98-76 sigur á Snæfelli (vann 3-0)

Undanúrslit: 94-91 sigur á Stjörnunni (vann 3-1)

Lokaúrslit: 93-84 sigur á Grindavík (vann 3-1)

2015

8 liða úrslit: 71-65 sigur á Grindavík (vann 3-0)

Undanúrslit: 79-62 sigur á Njarðvík (vann 3-2)

Lokaúrslit: 94-74 sigur á Tindastól (vann 3-1)

2016

8 liða úrslit: 85-67 sigur á Grindavík (vann 3-0)

Undanúrslit: 69-67 sigur á Njarðvík (vann 3-2)

Lokaúrslit: 91-61 sigur á Haukum (vann 3-1)

2017

8 liða úrslit: 99-68 sigur á Þór Ak. (vann 3-1)

Undanúrslit: 90-71 sigur á Keflavík (vann 3-1)

Lokaúrslit: 98-65 sigur á Grindavík (vann 3-2)

2018

8 liða úrslit: 89-74 sigur á Njarðvík (vann 3-0)

Undanúrslit: 67-76 tap á móti Haukum




Fleiri fréttir

Sjá meira


×