Viðskipti erlent

Huawei gefst ekki upp

Þórgnýr Einar Albertsson skrifar
Richard Yu, forstjóri Huawei. Nordicphotos/AFP
Richard Yu, forstjóri Huawei. Nordicphotos/AFP
Þrátt fyrir að ekkert stærstu fyrirtækja Bandaríkjanna á sviði fjarskipta og engin stór raftækjaverslun þar í landi selji vörur kínverska snjallsímaframleiðandans Huawei ætlar fyrirtækið ekki að gefast upp. „Við ætlum okkur að vinna traust bandarískra neytenda með því að einbeita okkur að því að sjá þeim fyrir nýjungum og vörum í heimsklassa,“ sagði Richard Yu, forstjóri Huawei, við CNET í gær.

Huawei kynnti í vikunni nýtt flaggskip sitt, P20 Pro snjallsímann sem er útbúinn þremur myndavélum á bakhliðinni. Bandaríkjamenn bíða þó ekki í röðum eftir símanum enda hafa yfirvöld þar í landi, meðal annars leyniþjónustan (CIA) og alríkislögreglan (FBI), sakað Huawei um að njósna um Bandaríkjamenn.

Því hafnaði Yu í gær. „Þessar áhyggjur byggja á órökstuddum grun og eru í rauninni ósanngjarnar. Við erum opin fyrir gegnsæjum viðræðum á staðreyndagrundvelli.“

Sagði Yu að jafnvel án Bandaríkjanna stefndi Huawei á að verða stærsti snjallsímaframleiðandi heims. Fyrirtækið situr nú í þriðja sæti þess lista, á eftir Apple og Samsung.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×