Sport

Hlynur sló Íslandsmet

Anton Ingi Leifsson skrifar
Hlynur Andrésson, frjálsíþróttakappi úr ÍR, sem nú stundar núm við Eastern Michigan háskólann sló Íslandsmet í tíu kílómetra hlaupi í nótt.

Hlynur var við keppni í Raleigh Relays í Norður-Karólínu en hann bætti tæplega tíu ára gamalt met Kára Steins Karlssonar um tæpar átta sekúndur.

Hlynur hljóp á 29:20,92 en hann endaði í sjöunda sæti af 92 keppendum. Gamla met Kára var 29:28,05 en Hlynur er 25 ára gamall.

Eftir að hafa hirt þetta met af Kára er Hlynur handhafi Íslandsmetana í þriggja, fimm og tíu kílómetra hlaupi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×