Erlent

Ríkisstjórn Trump vill vinda ofan af reglum um sparneytni bíla

Kjartan Kjartansson skrifar
Samkvæmt reglum Obama-stjórnarinnar hefðu nýir bílar í Bandaríkjunum þurft að draga 23 kílómetra á lítrann fyrir árið 2025.
Samkvæmt reglum Obama-stjórnarinnar hefðu nýir bílar í Bandaríkjunum þurft að draga 23 kílómetra á lítrann fyrir árið 2025. Vísir/AFP
Reglur sem áttu að draga úr losun bifreiða á gróðurhúsalofttegundum sem valda loftslagsbreytingum og auka sparneytni þeirra verða verulega útvatnaðar samkvæmt tillögu sem ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta ætlar að tilkynna um á næstunni. Aðgerðir Trump eru sagðar ganga mun lengra en bílaframleiðendur höfðu þrýst á um.

Búist er við því að tilkynnt verði um breytingar á reglunum sem ríkisstjórn Baracks Obama, fyrrverandi forseta, setti á næstu dögum, að sögn New York Times. Samkvæmt þeim hefðu bílaframleiðendur þurft að tvöfalda sparneytni nýrra bifreiða fyrir árið 2025.

Reglurnar voru ein stærsta loftslagsaðgerð ríkisstjórnar Obama. Með þeim hefði regluverk alríkisstjórnarinnar verið jafnstrangt og Kaliforníu sem hefur jafnan verið fremst í flokki í umhverfismálum vestanhafs.

Þegar Trump tók við embætti í fyrra fóru fulltrúar þriggja stórra bílaframleiðenda; General Motors, Ford og Chrysler, á fund hans til að biðja hann um að opna aftur fyrir umsagnir um reglurnar sem þeir vildu milda. Þeir vildu meðal annars getað reiknað kerfi sem slekkur á vél þegar hennar er ekki þörf inn í sparneytni bíls og töldu að ekki ætti að telja koltvísýringslosun frá orkuframleiðslu fyrir rafbíla sem losun frá bílum.

Scott Pruitt, forstjóri Umhverfisstofnunar Bandaríkjanna, er sagður munu kynna útvönun reglnanna sem aðgerð til að létta á regluverki á bílaframleiðendur sem muni skila neytendum ódýrari trukkum, sendiferðabílum og jepplingum.

Gæti skipt Bandaríkjunum upp í tvö markaðssvæði

Tillögurnar sem Trump-stjórnin er nú með í vinnslu eru hins vegar sagðar hafa komið bílaframleiðendunum sjálfum í opna skjöldu þar sem þær gangi mun lengra en þær hugmyndir sem þeir höfðu um breytingar.

„Við báðum ekki um þetta. Tillögurnar sem við settum fram voru skynsamlegar,“ segir Robert Bienenfeld, aðstoðarvaraforseti umhverfis- og orkuáætlunar Honda í Bandaríkjunum við New York Times.

Í sama streng taka forsvarsmenn Ford sem segjast aðeins vilja aukinn sveigjanleika en ekki afnám reglnanna. Þeir styðji hertar umhverfiskröfur til bifreiða til 2025.

Bílaframleiðendurnir höfðu gert ráð fyrir að yfirvöld í Kaliforníu gætu sætt sig við tilslakanirnar sem þeir óskuðu eftir. Nú gæti hins vegar stefnt í baráttu fyrir dómstólum á milli ríkisstjórnar Kaliforníu og alríkisstjórnar Bandaríkjanna.

Þá er ekki loku fyrir það skotið að Bandaríkin muni skiptast upp í tvo markaði með bíla þar sem ólíkar reglur um mengun og sparneytni gilda. Nokkur önnur ríki Bandaríkjanna fylgja reglum Kaliforníu sem saman mynda um þriðjung bifreiðamarkaðarins.

Yfirvöld í Kaliforníu hafa þegar lýst því yfir að þau muni ekki taka útvötnun reglnanna þegjandi. Búist er við því að fulltrúar alríkisstjórnarinnar muni hvetja Kaliforníu til þess að milda sínar reglur.


Tengdar fréttir

Fjölgun jepplinga vinnur gegn samdrætti í losun

Á sama tíma og bílaframleiðendur lofa að einbeita sér meira að umhverfisvænni bifreiðum fjárfesta þeir grimmt í þróun jepplinga sem eyða allt að 30% meira eldsneyti en minni bensínbílar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×