Innlent

Bresk könnunarflugvél skoðar hafstrauma hér

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Könnunarflugvél British Antarctic Survey er nú gerð út frá Akureyrarflugvelli. Verið er að rannsaka svonefndan Norður-Íslandsstraum.
Könnunarflugvél British Antarctic Survey er nú gerð út frá Akureyrarflugvelli. Verið er að rannsaka svonefndan Norður-Íslandsstraum. Vísir/auðunn
Sérútbúin Twin Otter flugvél á vegum stofnunarinnar British Antarctic Survey hefur undanfarið haft bækistöðvar á Akureyri og stundað þaðan rannsóknarflug við Íslandstrendur.

„Um er að ræða vísindarannsóknir sem hafa það að markmiði að rannsaka hitastig sjávar og lofts, auk hafíss. Fyrirtækið sem um ræðir heitir British Antartic Survey og eru verkefni þess unnin í samstarfi við fjölmarga aðila, meðal annars veður­stofur Íslands og Noregs ásamt fjölda háskóla víða um heim,“ segir Þórhildur Elínardóttir, upplýsingafulltrúi Samgöngustofu, um erindi bresku flugvélarinnar á Íslandi.

Um er að ræða stórt verkefni á vegum breska East Anglia háskólans sem stofnunin British Ant­arctic Survey­ starfar fyrir. Samkvæmt svörum frá British Antarctic Survey­ er vera vísindamannanna hér nú tengd stóru verkefni sem snýst um höfin við Ísland og Grænland.

„Flugvélin er útbúin fjölbreyttu úrvali tækja til loftslagsrannsókna,“ segir í svari frá British Antarctic Survey,­ sem vísar á East Anglia háskólann varðandi frekari upplýsingar.

Ekki hafa enn fengist nánari skýringar frá  breska háskólanum en þó benti talsmaður hans á upplýsingasíðu um verkefnið. Þar kemur fram að verið sé að rannsaka svokallaðan Norður-Íslandsstraum sem hafi uppgötvast fremur nýlega. Þessi Íslandsstraumur leggi til helming þess vatns sem streymi til suðurs um Grænlandssund og leggi sitt af mörkum til Norður-Atlantshafsstraumsins sem skipti sköpum fyrir loftslag í heiminum, sérstaklega í Evrópu.

„Við munum meta hlut Íslandshafs í hnattrænum og svæðisbundnum loftslagslíkönum og rannsaka líklegar breytingar á loftflæði og yfirborðsflæði vegna loftslagsbreytinga,“ segir á upplýsingasíðu verkefnisins sem sagt er standa frá árinu 2016 til 2020.

Breska könnunarvélin var á föstudag við Skjálfandaflóa og Axarfjörð og á Ströndum við Húnaflóa í gær.

British Antarctic Survey er stofnun sem heyrir undir Rannsóknarráð umhverfismála í Bretlandi. Til starfseminnar fær BAS árlega fimmtíu milljónir punda, það svarar til um sjö milljarða íslenskra króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×