Körfubolti

KR-liðið búið að vinna 24 leiki í röð í átta liða úrslitum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kristófer Acox.
Kristófer Acox. vísir/eyþór
KR-ingar unnu í gærkvöldi sannfærandi 25 stiga sigur á Njarðvík í Ljónagryfjunni, 91-66, og eru þar með komnir í 2-0 í einvígi liðanna í átta liða úrslitum úrslitakeppni Domino´s deildar karla í körfubolta.

KR-ingar hafa unnið tvo fyrstu leikina með samtals 40 stigum því þeir unnu leik eitt 89-74. KR getur tryggt sér sæti í undanúrslitum með sigri í næsta leik sem fer fram á þeirra heimavelli í Vesturbænum.

Jón Arnór Stefánsson hefur farið fyrir KR-liðinu í þessum tveimur leikjum en hann er með 35 stig á 47 mínútum og 62 prósent þriggja stiga skonýtingu í þessum tveimur sigrum.

Kristófer Acox er síðan með 20 stig og 12 fráköst að meðaltali í leik og Pavel Ermolinskij er að bjóða upp á meðaltölin 7,5 stig, 8,5 fráköst og 11,5 stoðsendingar.

Það eru reyndar flestir að skila því Kendall Pollard (13,5 stig í leik), Darri Hilmarsson (13,0) og Björn Kristjánsson (11,5) sjá til þess að alls fimm leikmenn KR-liðsins eru að skora yfir ellefu stig að meðaltali í úrslitakeppninni til þessa.

KR-ingar hafa með þessum tveimur sigurleikjum haldið áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í átta liða úrslitunum.

KR-liðið hefur nefnilega unnið alla 24 leiki sína í fyrstu umferð úrslitakeppninnar frá vorinu 2008. KR tapaði í oddaleik á móti ÍR í átta liða úrslitunum 29. mars 2008 en hefur unnið alla leiki sína í þessum hluta úrslitakeppninnar síðan þá.

Nú eru liðnir 3643 dagar síðan að KR tapaði leik í átta liða úrslitunum eða níu ár, ellefu mánuðir og 20 dagar.



KR í átta liða úrslitum úrslitakeppninnar 2009-2018:

2009

KR 2-0 Breiðablik {123-75, 102-75}

2010

KR 2-0 ÍR {98-81, 103-81}

2011

KR 2-0 Njarðvík {92-80, 96-80}

2012

KR 2-0 Tindastóll {84-68, 89-81}

2013

Þór Þorl. 0-2 KR {83-121, 83-93}

2014

KR 3-0 Snæfell {98-76, 99-85, 101-84}

2015

KR 3-0 Grindavík {71-65, 81-77, 94-80}

2016

KR 3-0 Grindavík {85-67, 91-77, 83-62}

2017

KR 3-0 Þór Ak.  {99-68, 81-64, 90-80}

2018:

KR 2-0 Þór Ak.  {89-74, 91-66, ...}




Fleiri fréttir

Sjá meira


×