Enski boltinn

Fyrrum leikmaður Manchester United og AC Milan gerist pizza bakari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jesper Blomqvist fagnar sigri í Meistaradeildinni 1999 með liðsfélögum sínum í Manchester United.
Jesper Blomqvist fagnar sigri í Meistaradeildinni 1999 með liðsfélögum sínum í Manchester United. Vísir/Getty
Fyrir nítján árum vann hann þrennuna með liði Manchester United en nú hefur Jesper Blomqvist snúið sér að því að fara að búa til pizzur fyrir svanga Svía.

Blomqvist hefur tapað miklum peningum í vondum fjárfestingum og sagði fyrir ári að hann væri að leita sér að venjulegu starfi.

„Ég hef tekið slæmar ákvarðanir og látið plata mig í slæmar fjárfestingar. Það er ekkert neyðarástand hjá mér en ég get bara ekki setið á sófanum og gert ekkert,“ sagði Jesper Blomqvist við Expressen.





„Núna getið þið keypt pizzu sem ég hef bakað,“ sagði Jesper Blomqvist í fyrrnefndu viðtali en hann var í sænska fótboltalandsliðinu sem vann bronsverðlaun á HM í Bandaríkjunum 1994.

Blomqvist spilaði með Manchester United frá 1998 til 2001. Hann lék 38 leiki með liðinu tímabilið 1998-98 þegar Manchester United vann ensku deildina, enska bikarinn og Meistraadeildina.  Blomqvist yfirgaf hinsvegar Old Trafford eftir að hann fékk ekkert að spila tímabilin 1999/2000 og 2000/01.

Frá Manchester United fór hann til Everton og Charlton en endaði síðan ferilinn á því að spila nokkur tímabil í Svíþjóð. Blomqvist lagði skóna á hilluna eftir 2010 tímabilið með Hammarby. Þá var hann búinn að vera atvinnumaður frá árinu 1992.

„Við keyptum lítinn pizza stað í Lidingö. Þessi staður hefur verið þarna í nokkur ár en núna ætlum við að flytja hann á betri stað og opna nýjan stað eftir mánuð,“ sagði Blomqvist.

„Ég hef verið að leita lengi að verkefni sem tengist mat eða drykk. Ég hef alltaf haft áhuga á því síðan að ég spilaði á Ítalíu. Nú loksins hef ég fundið eitthvað sem er nógu stórt og spennandi. Eftir hálft ár þá verð ég farinn að baka pizzur,“ sagði Blomqvist.

Blomqvist spilaði fyrir AC Milan og Parma á Ítalíu. Markmiðið er að pizzurnar hans verði undir ítölskum áhrifum. Blomqvist flutti meðal annars ofninn inn frá Napoli.

„Ég er ennþá að læra að búa til pizzu. Ég get ekki lofað því að ég ráði við háannatímann á laugardögum ennþá. Stefnan er að vera orðinn góður eftir hálf ár og þá verð ég líka að baka á laugardögum,“ sagði Blomqvist.

Það má finna meira um málið hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×