Innlent

Þórdís Lóa leiðir lista Viðreisnar í Reykjavík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir rekstrarhagfræðingur leiðir lista Viðreisnar í borginni.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir rekstrarhagfræðingur leiðir lista Viðreisnar í borginni. Vísir/Valli
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir rekstrarhagfræðingur mun leiða lista Viðreisnar sem býður fram í borgarstjórnarkosningunum í vor. Listinn var kynntur á fundi Viðreisnar nú síðdegis.

Pawel Bartoszek stærðfræðingur er í öðru sæti listans og Diljá Ámundadóttir almannatengill, sem áður var í röðum Bjartrar framtíðar, er í þriðja sæti.

„Reykjavík er frábær borg þar sem mætast borgarmannlíf og nálægð við náttúru. Okkur í Viðreisn er sérstaklega umhugað um að setja fókusinn á þarfir borgarbúa í daglegu lífi í borginni. Leiðarljósið okkar er að tryggja borgarbúum góða þjónustu, framúrskarandi menntun, heildstætt skipulag og góðar samgöngur. Þannig viljum við stuðla að því að Reykjavík verði besta borg í Evrópu sem við teljum raunhæft ef vel er haldið á spöðunum,“ segir Þórdís Lóa í tilkynningu.



Listann í heild má sjá hér að neðan.

1. Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, rekstrarhagfræðingur

2. Pawel Bartoszek, stærðfræðingur

3. Diljá Ámundadóttir, almannatengill og varaborgarfulltrúi

4. Gunnlaugur Bragi Björnsson, viðskiptafræðingur

5. Vilborg Guðrún Sigurðardóttir, grunnskólakennari

6. Geir Finnsson, formaður Uppreisnar í Reykjavík

7. Arna Garðarsdóttir, mannauðsstjóri Landbúnaðarháskóla Íslands

8. Ingólfur Hjörleifsson, aðjúnkt við verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ

9. Helga Lind Mar, laganemi, frístundaleiðbeinandi og aktívisti

10. Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri

11. Sara Sigurðardóttir, sérfræðingur í markaðsmálum

12. Árni Grétar Jóhannsson, leikstjóri og leiðsögumaður

13. Katrín Sigríður Júlíu Steingrímsdóttir, nemi

14. Freyr Gústavsson, tekjustjóri

15. Þórunn Hilda Jónasdóttir, verkefnastjóri viðburða

16. Arnar Kjartansson, nemi

17. Jenný Guðrún Jónsdóttir, rekstarstjóri

18. Sverrir Kaaber, skrifstofustjóri

19. Kristín Ágústsdóttir, sérfræðingur

20. Oddur Mar Árnason, þjónn

21. María Rut Kristinsdóttir, aðstoðarmaður formanns Viðreisnar

22. Einar Thorlacius, lögfræðingur

23. Þorbjörg Inga Þorsteinsdóttir, lögfræðingur

24. Aron Eydal Sigurðarson, þjónustufulltrúi

25. Aðalbjörg Guðmundsdóttir, náms og starfsráðgjafi

26. Gylfi Ólafsson, doktorsnemi

27. Dóra Tynes, lögmaður

28. Lárus Elíasson, verkfræðingur

29. Sóley Ragnarsdóttir, lögfræðingur

30. Starri Reynisson, stjórnmálafræðinemi

31. Sandra Hlín Guðmundsdóttir, nám- og starfsráðgjafi

32. Einar Karl Friðriksson, efnafræðingur

33. Sigrún Helga Lund, dósent í líftölfræði

34. Jón Bjarni Steinsson, framkvæmdastjóri

35. Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir, markaðsstjóri

36. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands

37. Ásdís Rafnar, lögfræðingur

38. Lúðvíg Lárusson, sálfræðingur

39. Stefanía Sigurðardóttir, viðburðastjóri

40. Samúel Torfi Pétursson, skipulagsverkfræðingur

41. Jóhanna E. Sveinsdóttir, viðskiptafræðingur

42. Jón Júlíus Karlsson, framkvæmdastjóri

43. Tanja Kristín Leifsdóttir, grunnskólakennari

44. Andri Guðmundsson, deildarstjóri

45. Jóhanna Fjóla Ólafsdóttir, fyrrverandi lektor

46. Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×