Golf

Rooney hjálpaði McIlroy að sigra um helgina

Anton Ingi Leifsson skrifar
Rory fagnar um helgina.
Rory fagnar um helgina. vísir/getty
Hinn magnaði golfari Rory McIlroy þakkar Wayne Rooney, framherja Everton, fyrir hjálpina um helgina en McIlroy stóð uppi sem sigurvegari á Arnold Palmer um helgina eftir fimm fugla á síðustu sex holunum.

Eftir að hafa ekki komist í gegnum niðurskurðinn á Valspar mótinu í Tampa byrjaði McIlroy að vinna í sínum málum á öllum hliðum golfsins. Hann spilaði svo frábærlega um helgina, eins og áður segir, og vann sinn fyrsta titil í nærri átján mánuði.

„Við vorum að tala um aðrar íþróttir,” sagði McIlroy um spjall sitt við Brad Faxon, einn af þjálfurum sínum, í aðdraganda mótsins. „Brad var að tala um þriggja stiga skyttur í körfubolta eða eitthvað sem ég tengdi meira við eins og fótbolta.”

„Við vorum að tala um kveikjuna að einhverju eða hvernig þú byrjar að hitt ofan í úr púttunum. Allir hafa mismunandi leið til þess að byrja eitthvað slíkt,” sagði McIlroy áður en hann beindi spjótum sínum að Rooney.

„Ég sagði að Rooney, áður en hann tæki aukaspyrnu eða víti, tiplaði tánni í völlinn áður en hann hljóp að boltanum. Ég tók eftir þessu þegar við vorum að taka upp Nike-auglýsingu saman fyrir nokkrum árum.”

Það styttist í Masters en keppni þar hefst 5. apríl. Það er því gleðifréttir fyrir Rory sé hann að hitna fyrir það magnaða mót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×