Glamour

Renée Zellweger í hlutverki Judy Garland

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Leikkonan Renée Zellweger fer með hlutverk Judy Garland í mynd byggðri á ævi söng- og leikkonunnar frægu. 

Fyrsta myndin af Zellweger sem Garland hefur nú verið opinberuð og óhætt að fullyrða að vel hefur tekist til. Hún nær henni ótrúlega vel, af myndinni að dæma. 

Kvikmyndin sjálf mun fjalla um síðustu tónleika Garland í London árið 1968, þar sem hún tróð upp fyrir fullu húsi þrátt fyrir ofþreytu og allskonar heilsukvilla. Garland lést nokkrum mánuðum eftir tónleikana í London, 47 ára gömul. Handritið er skrifað af sama höfundi og skrifar The Crown, Tom Edge. 

Þetta verður forvitnileg mynd en tökur fara nú fram í London. 










×