Innlent

Mótmæltu fiskveiðistefnu ESB með brottkasti í Thames

Stefán Rafn Sigurbjörnsson skrifar
Harðlínumenn úr röðum Íhaldsflokksins í Bretlandi hóta nú að setja útgönguferli Bretlands úr Evrópusambandinu í uppnám ef Bretland gengur ekki tafarlaust úr sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins. 

Á mánudaginn tilkynntu þeir David Davis, ráðherra útgöngumála í Bretlandi, og Michel Barnier aðalsamningamaður Evrópusambandsins vegna Brexit, að sátt hefði náðst um svokallaðan umskiptasamning. Þar segir meðal annars að Bretland muni vera áfram innan sameiginlegu fiskveiðistefnu Evrópusambandsins út allt ferlið til ársloka 2020 auk þess sem fiskveiðikvótar Bretlands haldist óbreyttir fram að því. 

The Guardian greinir frá því að 13 þingmenn Íhaldsflokksins og einn þingmaður Norður Írska Lýðræðislega sambandsflokksins hafa krafið Theresu May, forsætisráðherra Bretlands, um að hafna umskiptasamningnum. Áður hafði eitt af samningsmarkmiðum Bretlands verið að yfirgefa ætti fiskveiðisamstarfið 30. mars 2019 en í síðustu samningalotu í Brussel gaf breska samninganefndin eftir í þeim efnum. Þingmennirnir mótmæla því harðlega og vilja að staðið verði við fyrri samningsmarkmið.

Nigel Farage, fyrrverandi leiðtogi UKIP, mætti á svæðið á trillu og tók þátt í mótmælunum.Vísir/EPA
Í bréfi sem þingmennirnir sendu Theresu May segja þeir að ílengd viðvera í fiskveiðisamstarfinu muni stórskaða breska fiskveiðiflotann og muni auka enn á vanda brothættra strandbyggða. Þingmennirnir þykja hafa nokkra vigt í málinu þar sem Íhaldsflokkurinn þarf að treysta á tíu þingmenn til að eiga meirihluta á þinginu.

Þingmennirnir telja að á þessu millibilstímabili fram að útgöngunni í lok árs 2020 muni Bretland hafa jafnvel minni stjórn yfir fiskveiðiauðlindinni heldur en áður. Michael Gove, umhverfisráðherra hefur tekið undir mótmælin og sagt umskiptasamninginn vonbrigði en hann fundaði með Ruth Davidson, leiðtoga skoskra Íhaldsmanna, fyrr í vikunni. Sammæltust þau um nauðsyn þess að Bretland hætti sem fyrst í fiskveiðisamstarfi Evrópusambandsins.

Í morgun mótmæltu uppreisnarþingmennirnir ásamt sjómönnum. Sigldu þeir fylktu upp Thames og vörpuðu fiski fyrir borð fyrir framan þinghúsið í London. Með í för var Nigel Farage, fyrrverandi formaður UKIP, og einn forsprakka þeirra sem vilja að Bretland gangi úr Evrópusambandinu.

„Fiskveiðar eru einn helsti prófsteinninn í Brexit viðræðunum,“ sagði Farage við tækifærið. „Þau lofuðu að klára ferlið 2019 en nú eru þau að segja með óskýrum hætti að þetta klárist 2021. Satt best að segja held ég að þau hafi ekki kjark í að standa með þeim kjósendum sem kusu með Brexit,“ sagði hann áður en hann sturtaði úr kari fullu af fisk í ána.


Tengdar fréttir

Segir að Bretar muni iðrast Brexit

Forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins telur að sú stund eigi eftir að renna upp þegar Bretar sjá eftir því að hafa gengið úr sambandinu.

Hefja herferð gegn Brexit

Nýr flokkur að franskri fyrirmynd ætlar að reyna að sannfæra breska þingmenn um að kjósa gegn því að Bretar segi skilið við Evrópusambandið.

Gagnrýnir utanríkisstefnu ríkisstjórnarinnar vegna Brexit

Formaður Viðreisnar segir að Bretar muni í krafti stærðar sinnar leitast við að skara eld að eigin köku í tvíhliða fríverslunarsamningum við útgönguna úr Evrópusambandinu, þar á meðal gagnvart Íslandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×