Innlent

Kveðst geta greint legginn sem fannst á Faxaflóa betur en nokkur annar í heiminum

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Kári Stefánsson er forstjóri íslenskrar.
Kári Stefánsson er forstjóri íslenskrar. vísir/stefán
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að fyrirtækið gæti greint legg sem áhöfnin á Fjölni GK fékk í veiðarfæri sín í febrúar betur en nokkur önnur stofnun í heiminum. Hann segir að sér finnist það svolítið spaugilegt og líka svolítið heimskulegt að senda lífsýni til Svíþjóðar í greiningu þegar þekkingin og getan til að gera slíkt hið sama sé til staðar hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Greint var frá því í gær að líkamsleifar hefðu fundist á Faxaflóa en um mannabein er að ræða sem kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur nú til rannsóknar. Um er að ræða annars vegar legg og hins vegar höfuðkúpu. DNA-sýni verða tekin úr beinunum þegar búið er að aldursgreina þau og verða sýnin svo send til Svíþjóðar í greiningu sem getur tekið þrjár til fjórar vikur.

Kári ræddi þessi mál í Reykjavík síðdegis í dag. Hann kveðst ekki þekkja til sænsku rannsóknarstofunnar í þessu tiltekna máli og segir að ef hann þekki ekki til rannsóknarstofu sem vinni við að greina DNA þá geti hún ekki talist mjög merkileg.

„En ef við vildum nýta okkur þá möguleika sem eru til staðar í gögnum Íslenskrar erfðagreiningar, ef samfélagið féllist á að nýta slíkar upplýsingar þá gætum við jafnvel komist að því hvaða einstaklingi þessi leggur hefur tilheyrt. Það sem mér finnst spaugilegt við þetta er að þegar helstu vísindastofnanir Svía þurfa á aðstoð að halda við að raðgreina DNA eða ráða í erfðafræði þá leita þeir til okkar. Þegar lögreglan á Íslandi þarf aðstoð við erfðagreiningu þá leita þeir til Svía. Mér finnst það svolítið spaugilegt, mér finnst það svolítið heimóttarlegt og mér finnst það svolítið heimskulegt,“ segir Kári og bætir við að Íslensk erfðagreining hafi ekki hagsmuni af því að vinna þessa vinnu heldur myndi fyrirtækið gera þetta ókeypis.

„Ef samfélagið fæli okkur það verkefni að vinna þetta, veitti okkur heimild til þess að nýta okkur þau gögn sem við erum með til þess að búa til skilning á því hver þessi einstaklingur var sem lærleggurinn tilheyrði, það gætum við gert betur en nokkur önnur stofnun í heiminum,“ segir Kári en hlusta má á allt viðtalið við hann í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Voru ekki í vafa um að leggurinn væri mannabein

Aðalsteinn R. Friðþjófsson, skipstjóri á Fjölni GK, segir að áhöfn skipsins hafi ekki verið í neinum vafa um að hafa fengið mannabein á einn krókinn á línunni í febrúar síðastliðnum þegar skipið var við veiðar á norðanverðum Faxaflóa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×