Innlent

Bein útsending: Fréttir Stöðvar 2

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Fjölga á leikskólaplássum og ungbarnadeildum í Reykjavík og leikskólakennurum verður fjölgað um 170. Við fjöllum nánar um þetta í fréttum Stöðvar 2 kl. 18:30.

Við fjöllum líka um uppbyggingu á vinsælum ferðamannastöðum en tveimur komma átta milljörðum króna verður varið í málaflokkinn á næstu þremur árum. Þá fjöllum við um áskorun Theresu May forsætisráðherra Breta sem hvatti í dag leiðtoga ríkja Evrópusambandsins til að fara að fordæmi Breta og reka rússneska leyniþjónustumenn úr landi.

Þá munum við ræða við forstjóra Persónuverndar sem telur að Facebook hafi dregið lappirnar við innleiðingu á nýrri evrópskri persónuverndarlöggjöf. Við hittum líka yngstu fréttamenn landsins á nýrri fréttastofu í Hraunvallaskóla í Hafnarfirði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×