Innlent

Fordæma árásir Tyrkja á Kúrda í Norður-Sýrlandi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, spurði utanríkisráðherra út í málsferð ráðherrans og ráðuneytisins varðandi leitina að Hauki Hilmarssyni.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, spurði utanríkisráðherra út í málsferð ráðherrans og ráðuneytisins varðandi leitina að Hauki Hilmarssyni. Vísir/Anton Brink

Þingflokkur Pírata fordæmir árásir Tyrkja á kúrdíska borgara í Norður-Sýrlandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Pírötum þar sem þeir segja að árásirnar fari fram með þöglu samþykki flestra NATO-þjóðanna. Þeir hvetja ríkisstjórnina til að taka undir fordæminguna.

Talið er að Íslendingurinn Haukur Hilmarsson hafi fallið í árásum Tyrkja í Afrin-héraði þar sem hann barðist með Kúrdum.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingflokksformaður Pírata, spurði Guðlaug Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, út í málsferð ráðherrans og ráðuneytisins varðandi leitina að Hauki. Svaraði Guðlaugur því meðal annars til að allra leiða hefði verið leitað til að komast að afdrifum Hauks.

Lýsa vonbrigðum með svör ráðherra

Í tilkynningu sinni lýsir þingflokkur Pírata yfir vonbrigðum með svör Guðlaugs Þórs við óundirbúinni fyrirspurn Þórhildar Sunnu. Í seinni fyrirspurn sinni beindi hún eftirfarandi til ráðherra:

„Lítur hann svo á að um ólögmæta innrás og árás Tyrkja inn í Sýrland og á Kúrda sé að ræða samanber stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna? Sé ráðherra sammála mér um að svo sé: Telur ráðherra ekki tilefni til að fordæma þessa innrás og beita sér eftir fremsta megni gegn hernaðaraðgerðum Tyrkja á svæðinu, á vettvangi Nató sem og annars staðar á alþjóðavettvangi?“

Guðlaugur Þór sagði að hvað varðaði aðgerðir Tyrklands í Afrin-héraði þá hafi íslensk stjórnvöld gagnrýnt hernaðaraðgerði Trykja gegn Kúrdum í Sýrlandi örfáum dögum eftir að þær hófust þann 20. janúar síðastliðinn.

„Var það gert beint við sendiherra Tyrklands gagnvart Íslandi og í framhaldinu var málið reifað í utanríkismálanefnd,“ sagði utanríkisráðherra.

Ber ávallt skylda til að fordæma ódæðisverk

Um þessi svör ráðherrans segir í tilkynningu Pírata:

„Ráðherra gat ekki svarað til um hvort hann teldi árásir Tyrkja vera ólögmætar og ganga gegn stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna. Né heldur var hann reiðubúinn til þess að fordæma árásir Tyrkja opinberlega.

Það er vissulega góðra gjalda vert að koma á framfæri mótmælum við sendiherra Tyrkja í Noregi, en betur má ef duga skal og vilja þingmenn Pírata hvetja ráðherra og ríkisstjórnina alla til þess að taka sér afgerandi stöðu með friði og grundvallarlögum þjóðarréttar í þessu máli. Við hvetjum ríkisstjórnina eindregið til þess að beita sér á alþjóðavettvangi, t.d. innan NATO sem og á vettvangi Evrópuráðsins, gegn ólöglegum árásum Tyrkja.“

„Okkur ber ávallt skylda til að fordæma ódæðisverk en sér í lagi þegar um er að ræða varnarbandalagsþjóð okkar í NATO sem hefur hafið innrás inn í annað ríki án samþykkis öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna eða annarra alþjóðastofnana,“ segir jafnframt í tilkynningunni.

Fyrirspurn Þórhildar Sunnu til Guðlaugs Þórs og svör hans má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.


Tengdar fréttir

Hætta ekki að leita svara

Eva Hauksdóttir, móðir Hauks Hilmarssonar sem talinn er hafa fallið í Sýrlandi í síðasta mánuði, segir að lík Hauks sé ekki í forgangi hjá fjölskyldu hans, heldur staðfesting á því að Haukur sé látinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×