Innlent

Listi VG í Reykjavík samþykktur á félagsfundi

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi, skipar 1. sæti lista Vinstri grænna í Reykjavík.
Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi, skipar 1. sæti lista Vinstri grænna í Reykjavík. Aðsent
Félagsfundur Vinstri grænna í Reykjavík samþykkti í kvöld framboðslista hreyfingarinnar til borgarstjórnar í komandi borgarstjórnarkosningum. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi, skipar 1. sæti listans, í 2. sæti er Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi, og Þorsteinn V. Einarsson, deildarstjóri í frístundamiðstöð, skipar 3. sætið.

„Við ætlum að halda áfram að auka lífsgæði borgarabúa og minnka álag á fólk og umhverfi með því m.a. að lækka álögur á barnafjölskyldur en við ætlum líka að stórbæta kjör og starfsaðstæður fjölmennra kvennastétta,“ er haft eftir Líf Magneudóttur, oddvita Vinstri grænna, í tilkynningu frá flokknum.

Framboðslistann í heild sinni má sjá hér fyrir neðan:

1. Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi

2. Elín Oddný Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúiá

3. Þorsteinn V Einarsson, deildarstjóri í frístundamiðstöð

4. Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm, leiklistarkennari og flugfreyja

5. René Biasone, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun

6. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, doktorsnemi í heimspeki

7. Guðrún Ágústsdóttir, formaður öldungaráðs Reykjavíkurborgar

8. Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, grunnskólakennari

9. Ragnar Auðun Árnason, stjórnmálafræðinemi

10. Sigrún Jóhannsdóttir, líffræðingur

11. Torfi Hjartarson, lektor

12. Ewelina Osmialowska, grunnskólakennari

13. Ragnar Karl Jóhannsson, uppeldis- og tómstundafræðingur

14. Elva Hrönn Hjartardóttir, stjórnmálafræðinemi og flugfreyja

15. Þráinn Árni Baldvinsson, tónlistarmaður

16. Anna Friðriksdóttir, lyfjafræðingur

17. Baldvin Már Baldvinsson, starfsmaður á leikskóla

18. Ólína Lind Sigurðardóttir, stjórnmála- og kynjafræðinemi

19. Daði Arnar Heiðrúnarson Sigmarsson, stuðningsfulltrúi

20. Þórhildur Heimisdóttir, landfræðinemi

21. Bryngeir Arnar Bryngeirsson, gönguleiðsögurmaður og tómstundafræðingur

22. Áslaug Thorlacius, skólastjóri

23. Stefán Pálsson, sagnfræðingur

24. Sigríður Pétursdóttir, kennari

25. Styrmir Reynisson, forstöðumaður í Selinu

26. Ísold Uggadóttir, kvikmyndaleikstjóri

27. Guy Conan Stewart, kennari

28. Edda Björnsdóttir, kennari

29. Jakob S Jónsson, leiðsögumaður og leikstjóri

30. Bergljót María Sigurðardóttir, sálfræðinemi

31. Toshiki Toma, prestur

32. Sigurbjörg Gísladóttir, efnafræðingur

33. Þröstur Brynjarsson, kennari

34. Thelma Rut Óskarsdóttir,     menntaskólanemi

35. Friðrik Dagur Arnarson, framhaldsskólakennari

36. Hildur Knútsdóttir, rithöfundur

37. Guðmundur J Kjartansson, landvörður

38. Jóhanna Bryndís Helgadóttir, starfs- og námsráðgjafi

39. Magnús Sveinn Helgason, sagnfræðingur

40. Dóra Svavarsdóttir, matreiðslumeistari

41. Steinar Harðarson, vinnuverndarráðgjafi

42. Þorgerður H Þorvaldsdóttir, sagn- og kynjafræðingur í ReykjavíkurAkademíunni

43. Gunnar Helgi Guðjónsson, myndlistamaður

44. Úlfar Þormóðsson   , rithöfundur

45. Guðrún Hallgrímsdóttir, verkfræðingur

46. Gunnsteinn Gunnarsson, barna- og unglingageðlæknir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×