Erlent

Trump skrifar undir fjárlög með semingi

Kjartan Kjartansson skrifar
Trump kallaði útgjaldafrumvarp þingsins fáránlegt en skrifaði engu að síður undir það.
Trump kallaði útgjaldafrumvarp þingsins fáránlegt en skrifaði engu að síður undir það. Vísir/AFP
Enn einni lokun bandarísku alríkisstjórnarinnar var forðað í dag þegar Donald Trump forseti skrifaði undir fjárlög sem Bandaríkjaþing samþykkti í vikunni. Trump hafði hótað að beita neitunarvaldi en skrifaði á endanum undir með þeim orðum að hann myndi aldrei aftur fallast á slík fjárlög.

Eftir japl, jaml og fuður náðu repúblikanar og demókratar samkomulagi um fjárlög í vikunni. Síðasta fjárlagaári lauk í september en síðan þá hefur alríkisstjórnin verið rekin með tímabundnum fjárveitingarheimilum sem þingið hefur samþykkt á nokkurra mánaða fresti.

Rekstur alríkisstjórnarinnar hefur í tvígang stöðvast, í skamman tíma þó, vegna átaka um innihald fjárlaganna. Þingmenn höfðu frest þangað til á miðnætti í kvöld til að samþykkja nýtt útgjaldafrumvarp.

Hótun eftir að þingmenn voru farnir úr bænum

Eina sem vantaði upp á var undirskrift Trump forseta. Því olli það skiljanlega ringulreið þegar Trump tísti í morgun um að hann væri að íhuga að beita neitunarvaldi. Þá voru þingmenn þegar á leið frá Washington-borg í tveggja vikna þinghlé, að því er kemur fram í frétt Reuters-fréttastofunnar.

Ástæðuna sagði Trump þá að ekki væri kveðið á um fulla fjármögnun landamæramúrs hans og að demókratar hefðu gefið svonefnda DACA-þega algerlega upp á bátinn. Það eru innflytjendur sem voru fluttir ólöglega til Bandaríkjanna þegar þeir voru börn. Trump batt enda á DACA-áætlun Baracks Obama, forvera síns í embætti, sem varði þá fyrir brottvísun síðasta haust. Demókratar leyfðu rekstri alríkisstjórnarinnar að stöðvast í nokkra daga til að knýja á um lausn fyrir DACA-skjólstæðinga í janúar.

Í fjárlögunum er kveðið á um 1,6 milljarða dollara fyrir múrinn á landamærunum að Mexíkó. Trump hafði krafist 25 milljarða dollara.

Demókratar höfðu raunar boðið Trump samkomulag um landamæramúrinn. Þeir voru tilbúnir að fallast á fulla fjármögnun hans gegn því að skjólstæðingar DACA-áætlunarinnar hlytu áframhaldandi vernd.

Trump hafnaði því tilboði hins vegar vegna þess að í því fólst ekki niðurskurður í komum löglegra innflytjenda sem hann vildi.

Fjármögnun ríkisins tryggð í sex mánuði

Síðdegis hafði Trump hins vegar undið kvæði sínu í kross. Tilkynnti hann fréttamönnum að hann hygðist skrifa undir fjárlögin.

„En ég segi við þingið að ég mun aldrei skrifa undir frumvarp af þessu tagi aftur. Ég ætla ekki að gera það,“ sagði Trump sem réttlætti það með því að hann vildi ekki koma í veg fyrir stóraukin útgjöld til hersins sem fjárlögin fela í sér.

Þar með lýkur nær mánaðarlegum átökum á Bandaríkjaþingi þar sem lokun alríkisstjórnarinnar hefur verið undir en aðeins tímabundið þó. Fjárlögin gilda út september.


Tengdar fréttir

Kenna Demókrötum um lokun alríkisstjórnarinnar

Bandarískum alríkisstofnunum hefur verið lokað um óákveðinn tíma þar sem ekki náðist að semja um greiðsluheimild til áframhaldandi starfsemi í öldungadeild Bandaríkjaþings.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×