Erlent

Frambjóðandi katalónskra aðskilnaðarsinna handtekinn

Sylvía Hall skrifar
Jordi Turull, forsetaefni katalónskra sjálfstæðissinna, var handtekinn. Til stóð að greiða atkvæði um skipan hans sem forseta héraðsstjórnarinnar.
Jordi Turull, forsetaefni katalónskra sjálfstæðissinna, var handtekinn. Til stóð að greiða atkvæði um skipan hans sem forseta héraðsstjórnarinnar. Vísir/AFP
Til óeirða kom í Katanlóníu í gærkvöldi eftir að spænskir dómstólar úrskurðuðu fimm leiðtoga katalónskra sjálfstæðissinna í varðhald, þar á meðal Jordi Turull, forsetaefni þeirra, og ákváðu að réttað skyldi yfir tuttugu og fimm öðrum í tengslum við umdeilda þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði héraðsins í fyrra.

Leiðtogarnir eru ákærðir fyrir uppreisn, fjárdrátt og að hafa óhlýðnast fyrirmælum stjórnvalda í tengslum við þjóðaatkvæðagreiðsluna. Þetta setur fyrirhugaða atkvæðagreiðslu katalónska þingsins í uppnám, en þar stóð til að tilnefna Turull sem forseta sjálfstjórnarhéraðsins í dag. Auk Turull voru forseti katalónska héraðsþingsins, þróunar-, atvinnumála- og utanríkismálaráðherrar héraðsstjórnarinnar handteknir.

Tíðindin um handtökurnar og ákærurnar hleyptu kappi í mótmæli sem höfðu þegar verið boðuð í Katalóníu í gærkvöldi. Kom til átaka á milli mótmælenda og óeirðarlögreglu sem vörðu spænskar stjórnarbyggingar. Breska ríkisútvarpið BBC segir að mótmælendurnir hafi meðal annars brennt myndir af hæstaréttardómara og af Filippusi konungi.

Tveir leiðtogar aðskilnaðarhreyfingarinnar eru enn eftirlýstir og hafa þeir hafa flúið land til Belgíu og Sviss, þar á meðal Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti héraðsstjórnarinnar. Reuters-fréttastofan segir að Puigdemont gæti verið handtekinn í Finnlandi eftir að spænsk stjórnvöld gáfu út alþjóðlega handtökuskipun á hendur honum. Finnsk stjórnvöld eru sögð hafa óskað frekari gagna frá spænsku ríkisstjórninni áður en hún ákveður næstu skref.

Lögmaður Puigdemont segir að hann muni gefa sig fram við finnsku lögregluna. Hann kom til landsins á fimmtudag til þess að hitta þingmenn og vera viðstaddur ráðstefnu.

Um 25 aðskilnaðarsinnar hafa verið ákærðir eftir þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði Katalóníu síðastliðinn október, en spænskir dómstólar úrskurðuðu atkvæðagreiðsluna ólöglega. Spænska ríkisstjórnin svipti Katalóníu sjálfræði í kjölfarið og tók yfir stjórn héraðsins.

Fréttin hefur verið uppfærð með upplýsingum um handtökuskipun Puigdemont.


Tengdar fréttir

Puidgemont hættir við

Carles Puidgemont, leiðtogi aðskilnaðarsinna Katalóna hefur tilkynnt að hann sækist ekki lengur eftir því að verða aftur útnefndur forseti Katalóníu.

Óvissan ríkir áfram í Katalóníu

Atkvæðagreiðslu um að gera Carles Puigdemont aftur að forseta héraðsstjórnar Katalóníu hefur verið frestað um óákveðinn tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×