Golf

Átta fugla hringur skaut Ólafíu upp töfluna

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur í GR, komst naumlega í gegnum niðurskurðinn á Kia Classic mótinu í golfi sem er hluti af LPGA mótaröðinni. Hún spilaði hins vegar frábærlega á fyrri níu holunum á þriðja hring í dag og fékk meðal annars fjóra fugla í röð.

Þegar Ólafía hóf leik í dag var hún á samtals á pari vallarins eftir fyrstu tvo hringina en með frábærri spilamennsku lauk hún leik á fjórum höggum undir pari og var í 27.-46. sæti. Margir af kylfingunum í toppbaráttunni áttu eftir að hefja leik þegar Ólafía kláraði og því óvíst hvar hún verður nákvæmlega í töflunni fyrir lokahringinn.

Ólafía fékk samtals átta fugla í dag en fjóra skolla. Eftir fimm fugla á sex holum í fyrri hlutanum var útlitið bjart hjá Íþróttamanni ársins 2017. Hún fékk hins vegar þrjá skolla á 11., 13. og 14. holu sem komu í veg fyrir að hún næði að blanda sér í baráttu um efstu 10 sætin.

Hún rétti þó leik sinn við og nældi í tvo fugla undir lokin. Með svipuðum hring á morgun er aldrei að vita hversu ofarlega Ólafía gæti endað á mótinu.

Beina textalýsingu af seinni 9 holum Ólafíu má sjá hér að neðan. Bein útsending frá mótinu hefst svo á Golfstöðinni klukkan 23:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×