Tónlist

Ateria vann Músíktilraunir

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Hljómsveitin Ateria skipuð Ásu, Eir og Fönn er sigurvegari Músíktilrauna 2018.
Hljómsveitin Ateria skipuð Ásu, Eir og Fönn er sigurvegari Músíktilrauna 2018. Músíktilraunir
Hljómsveitin Ateria stóð uppi sem sigurvegari á úrslitakvöldi Músíktilrauna sem fór fram í Hörpu í kvöld. Í öðru sæti var hljómsveitin Mókrókar og sveitin Ljósfari hafnaði í því þriðja.

Dagir B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur tilkynnti úrslitin.

Hljómsveitina skipa Ása Ólafsdóttir, Eir Ólafsdóttir og Fönn Fannarsdóttir og þær hafa allar stundað tónlistarnám og tekið þátt í Stelpur rokka. Ása og Eir eru systur og Fönn er frænka þeirra. Hljómsveitin var stofnuð haustið 2017 og æfir í bílskúr í Vesturbæ Reykjavík.

Ása er sautján ára og sér um gítarleik og söng. Eir, sem er sextán ára spilar á bassa og selló ásamt því að syngja. Fönn, sem verður þrettán ára í næsta mánuði, spilar á trommur.

Eftirfarandi aðilar hlutu einnig viðurkenningar:

Hljómsveit fólksins:

Karma Brigade

Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku:

Agnar Dofri Stefánsson (Agnarsmár)

Trommuleikari Músíktilrauna:

Þórir Hólm Jónsson (Mókrókar)

Gítarleikari Músíktilrauna:

Þorkell Ragnar Grétarsson (Mókrókar)

Bassaleikari Músíktilrauna:

Snorri Örn Arnarson (Ljósfari og Jóhanna Elísa)

Hljómborðsleikari Músíktilrauna:

Jóhanna Elísa Skúladóttir (Jóhanna Elísa)

Söngvari Músíktilrauna:

Eydís Ýr Jóhannsdóttir (Sif)

Rafheili Músíktilrauna:

Darri Tryggvason (Darri Tryggvason)

Blúsaðasta bandið:

Mókrókar






Fleiri fréttir

Sjá meira


×