Golf

Skollamergð á lokahring Ólafíu

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Ólafía er í fínni stöðu í Kaliforníu
Ólafía er í fínni stöðu í Kaliforníu vísir/getty
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir lauk leik á Kia Classic mótinu í golfi í kvöld en mótið er hluti af LPGA mótaröðinni.

Eftir að hafa naumlega komist í gegnum niðurskurðinn átti Ólafía frábæran dag í gær þar sem hún setti meðal annars fimm fugla á sex holum. Fyrir lokadaginn í dag var hún í 35.-39. sæti á fjórum höggum undir pari og átti möguleika á að komast ofar með svipaðri spilamennsku og hún sýndi í gær.

Það var hins vegar ekki uppi á teningnum í dag og endaði hún í 76.-80. sæti eftir mjög mislukkaðan dag.

Fyrstu holurnar voru mjög stöðugar hjá Ólafíu. Hún paraði sjö af fyrstu átta holum, fékk skolla á fjórðu braut. Svo komu tveir skollar í röð og tvöfaldur skolli á 13. braut. Þá var hún komin yfir parið og átti ekki eftir að fara undir það aftur.

Ólafía náði einum fugl á vellinum í dag, á 16. holu. Hún fékk hins vegar skolla á 15. og 17. holu og spilaði því hringinn í dag á 6 höggum yfir pari og var samtals á tveimur höggum yfir pari.

Þrátt fyrir að enn séu kylfingar úti á vellinum þegar þessi frétt er skrifuð er nokkuð öruggt að staða Ólafíu sé lokaniðurstaðan þar sem næsti kylfingur fyrir ofan sem ekki hefur lokið leik er á þremur höggum undir pari.

Mótið var það fjórða sem Ólafía tók þátt í á LPGA mótaröðinni í ár. Hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn á síðustu tveimur mótum en endaði jöfn í 26. sæti á Pure Silk mótinu á Bahama eyjum.

Stutt er í næsta mót en Ólafía Þórunn verður meðal keppenda á Ana Inspiration mótinu sem hefst strax næsta fimmtudag. Mótið er fyrsta risamót ársins.

Mikil barátta er á toppi töflunnar á Kia Classic mótinu og hefst bein útsending á Golfstöðinni klukkan 23:00. Beina textalýsingu frá hring Ólafíu má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×