Innlent

Áfram blæs í dag

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Vindaspá fyrir daginn í dag.
Vindaspá fyrir daginn í dag. Veðurstofa Íslands
„Það blés sums staðar hressilega á landinu í gær og enn blæs í dag, þó dregið hafi úr,“ segir veðurfræðingur Veðurstofunnar þennan morguninn. Gera má ráð fyrir því að eftir hádegi verði austan-strekkingur nokkuð víða, en hvassviðri með suðurströndinni.

Á Norðurlandi ætti að haldast þurrt en aðrir landshlutar mega búast við úrkomu á einhverjum tímapunkti í dag ef marka má spákortin. Hitinn verður yfirleitt 1 til 7 stig yfir daginn, hlýjast suðvestanlands.

Það mun svo bæta í vind á morgun og er útlit fyrir allhvassan eða hvassan vind af austri, en storm eða rok í Öræfum og einnig syðst á landinu. Ætla má að vindhraðinn verði víða á bilinu 13 til 20 m/s og allt að 20 til 25 m/s á Suðausturlandi. Gul viðvörun er því í gildi fyrir Suðurland til hádegis og fyrir miðhálendið til klukkan 10.

Austanvert landið fær rigningu eða slyddu á morgun, en vestanmegin verður þurrt að kalla.

Á skírdag lægir svo og þá er útlit fyrir hið rólegasta veður á landinu. Þó verður „mjög kalt í veðri“ á páskadag og annan í páskum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga 

Á miðvikudag:

Austan og norðaustan 13-20 m/s, en 20-25 á Suðausturlandi og einnig syðst á landinu. Rigning eða slydda suðaustan- og austanlands, en úrkomulítið í öðrum landshlutum. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. 

Á fimmtudag (skírdagur):

Hæg austlæg eða breytileg átt, en norðaustan 8-13 syðst á landinu. Víða léttskýjað, en dálítil snjókoma eða slydda austanlands. Hiti breytist lítið. 

Á föstudag (föstudagurinn langi):

Hæg breytileg átt. Skúrir eða él í flestum landshlutum og hiti 0 til 5 stig. 

Á laugardag:

Gengur í norðanátt með snjókomu eða éljum, einkum um landið norðanvert. Kólnandi veður. 

Á sunnudag (páskadagur) og mánudag (annar í páskum):

Útlit fyrir norðanátt með með éljum. Mjög kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×