Lífið

Freyr og Erla Súsanna selja einbýli í Fellahverfinu á 65 milljónir

Stefán Árni Pálsson skrifar
Freyr og Erla Súsanna hafa komið sér vel fyrir í Keilufelli.
Freyr og Erla Súsanna hafa komið sér vel fyrir í Keilufelli. myndir/fasteignavefur vísis/getty
Þau Freyr Alexandersson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, og Erla Súsanna Þórisdóttir hafa sett einbýlishús sitt í Keilufelli á söluskrá  en ásett verð er um 65 milljónir. Þau tilkynntu á dögunum að von væri á nýjum fjölskyldumeðlim en fyrir eiga þau hjónin tvær dætur. 

Um er að ræða rúmgott og bjart einbýlishús á tveimur hæðum en eignin er alls 176 fermetrar að stærð.

Húsið var byggt árið 1973 og eru í því fjögur svefnherbergi. Fasteignamat eignarinnar er 51 milljón. Hér að neðan má sjá fallegar myndir af eigninni.

Fallegt hús í Breiðholtinu.
Stofan og eldhúsið í góðu flæði og mjög svo bjart rými.
Fallegt baðherbergi.
Smekkleg setustofa.
Frábær sólpallur við húsið.
Mjög falleg eign.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×