Körfubolti

Wade vann vinaslaginn á móti LeBron | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
LeBron James og Dwyane Wade.
LeBron James og Dwyane Wade. Vísir/Getty
Eftir gott gengi að undanförnu var Cleveland Cavaliers rifið niður úr skýjunum í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar að það tapaði stórt á út ivelli gegn Miami Heat, 98-79.Þarna mættust bestu vinirnir Dwayne Wade og LeBron James sem spiluðu saman fyrr á leiktíðinni í Cleveland áður en Wade var skipt aftur til Miami.

LeBron skoraði miklu fleiri stig eða 18 talsins auk þess sem hann tók sex fráköst gaf sjö stoðsendingar. Wade skoraði aðeins sex stig en vann leikinn sem skiptir meira máli. Hann varði tvö skot frá LeBron og Lebron tók hann tvívegis illa í vörninni.

„Við erum ekki þannig að við montum okkur að því sem við gerum á móti hvor öðrum inn á vellinum,“ sagði Wade við fjölmiðla eftir þennan glæsilega sigur í nótt.

Houston Rockets er áfram óstöðvandi í vestrinu en liðið vann tíunda leikinn í röð í nótt þegar að það lagði Chicago Bulls á heimavelli, 118-86. Þetta er þriðji leikurinn í röð sem Houston vinnur stórt.

Eric Gordon skoraði 31 stig fyrir Houston sem var meria að segja án James Harden í leiknum. Chris Paul skoraði þrettán stig og gaf tíu stoðsendingar.

Houston er með afgerandi forskot á Golden State á toppnum í vestrinu en varalið meistaranna tapaði öðrum leiknum í röð í nótt. Þar eru allir sem eitthvað heita frá vegna meiðsla: Steph Curry, Klay Thompson, Draymond Green og Kevin Durant.

Warriors tapaði fyrir Pacers í nótt, 92-81, þar sem Nick Young var stigahæstur heimamanna með tólf stig en hjá Indiana var Victor Oladipu stigahæstur með 24 stig.

Úrslit næturinnar:

Washington Wizards - San Antonio Spurs 116-106

Toronto Raptors - Denver Nuggets 114-110

Miami Heat - Cleveland Cavaliers 98-79

Houston Rockets - Chicago Bulls 118-86

New Orleans Pelicans - Portland Trail Blazers 103-107

Sacramento Kings - Dallas Mavericks 97-103

Golden State Warriors - Indiana Pacers 81-92

LA CLippers - Milwaukee Bucks 105-98

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×