Innlent

Tveir fengu greitt fyrir síma

Baldur Guðmundsson skrifar
Tveir þingmenn fengu í janúar styrk vegna símakaupa
Tveir þingmenn fengu í janúar styrk vegna símakaupa vísir/ERNIR
Þingmenn fengu í janúar samtals greitt 551 þúsund krónur frá þinginu vegna síma- og netnotkunar.

Þingmenn fá endurgreiddan kostnað við notkun á heimasíma og farsíma auk nettengingar, að því er fram kemur á vef Alþingis.

Einnig endurgreiðir Alþingi þingmanni á tveggja ára fresti allt að 80 þúsund krónum til kaupa á farsíma að eigin vali. Tveir þingmenn fengu í janúar styrk vegna símakaupa. Þau Guðmundur Andri Thorsson og Helga Vala Helgadóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×