Innlent

Meðvirkni og ótti við breytingar

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði jafnréttismál, fjölþjóðasamvinnu og frjálslyndi að umfjöllunarefni sínu í stefnuræðu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði jafnréttismál, fjölþjóðasamvinnu og frjálslyndi að umfjöllunarefni sínu í stefnuræðu. Vísir/Eyþór
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sagði í stefnuræðu sinni að ástæðurnar fyrir því að flokkurinn færi ekki með himinskautum frá fyrsta degi séu meðvirkni og ótti við breytingar.

„En hvers vegna er það þá sem Viðreisn, ungur flokkur sem skuldar engum hagsmunaöflum nokkurn skapaðan hlut, frjálslyndur velferðarflokkur, alþjóðasinnaður jafnréttisflokkur sem hefur fólk raunverulega í fyrirrúmi, styður við heilbrigt umhverfi fyrirtækja og segir úreltum viðhorfum stríð á hendur, fer ekki með himinskautum frá fyrsta degi? Í mínum huga er svarið tvíþætt. Annars vegar það sem margir telja einn hættulegasta lífsstílssjúkdóm hins vestræna heims – meðvirkni. Hins vegar það sem er svo ríkt og skiljanlegt í mannlegu eðli – ótti við breytingar. Þú veist hvað þú hefur en ekki endilega hvað þú færð.“

Þetta sagði Þorgerður Katrín, sem í ræðu sinni, gerði jafnréttismál, fjölþjóðasamvinnu og frjálslyndi að umfjöllunarefni sínu á öðrum degi Landsþings Viðreisnar sem fer fram um helgina í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.

Krónan fín ef þú átt hana

Þorgerður Katrín sagði að íslenska krónan væri stærsta áskorunin sem blasir við þjóðinni. „Íslenskri þjóð þykir vænt um krónuna sína, það á hana jú enginn annar í heiminum. Hún er líka fín meðan þú átt hana og allt er í lukkunnar velstandi. Um leið og þú skuldar hana er hún hins vegar slóttug og jafnvel ofbeldisfull,“ segir formaður Viðreisnar.

Krónan hafi valdið meiri efnahagslegum mismun milli þeirra sem hafa aðstöðu til að standa utan krónuhagkerfisins og hinna sem séu bundnir innan þess. „Óstöðugleiki hennar bitnar á víxl á launafólki og atvinnufyrirtækjum. Hann veldur því að vöxturinn í þjóðarbúskapnum er í láglaunastörfum fremur en hærra launuðum störfum á sviði tækniþekkingar og nýsköpunar,“ segir Þorgerður Katrín sem segir aðild að evrópska myntbandalaginu hljóta, við aðstæður sem þessar, að vera brennandi spurning.



Í myndspilaranum hér að neðan er hægt að hlusta á stefnuræðu formanns Viðreisnar í heild.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×