Enski boltinn

Mertesacker: Þarf oft að æla

Dagur Lárusson skrifar
Per Mertesacker
Per Mertesacker vísir/getty
Per Mertesacker, leikmaður Arsenal, segir að honum líði hræðilega fyrir stórleiki og hann þurfti oft á tíðum að æla.

Mertesacker er að spila sitt síðasta tímabil sem leikmaður en eftir tímabilið mun hann leggja skóna á hillunni og ganga til liðs við þjálfarateymi Arsenal.

„Oft fyrir stóra leiki þá byrjar mér að líða illa og ég þarf oft að æla. Mér líður það illa að ég stífna upp og byrja að tárast.“

Mertesacker var hluti að liði Þjóðverja sem tapaði fyrir Ítalíu í undanúrslitum HM árið 2006 og segir hann að þrátt fyrir tapið hafið hann fundið fyrir ákveðnum létti.

„Auðvitað var ég miður mín en samt sem áður fann ég fyrir gríðarlega miklum létti.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×