Enski boltinn

Agureo frá í tvær vikur

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Sergio Aguero
Sergio Aguero vísir/getty
Sergio Aguero verður ekki í liði Manchester City sem mætir Stoke annað kvöld vegna meiðsla. Hann greindi frá því á Twitter í dag að hann yrði frá næstu tvær vikur.

Agureo meiddist á hné á æfingu City í gær og staðfestu læknar liðsins að hann þyrfti að hvílast næstu tvær vikur.





Stuðningsmenn City þurfa þó ekki að örvænta um of því eftir leikinn annað kvöld mun City ekki spila leik fyrr en 31. mars þegar liðið fer til nágrannaborgarinnar Liverpool og mætir Everton á Goodison Park.

Leikur Stoke og Manchester City verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport annað kvöld og hefst útsending klukkan 19:50.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×