Enski boltinn

Carragher hrækti á fjórtán ára stúlku á hraðbrautinni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jamie Carragher.
Jamie Carragher. vísir/getty
Knattspyrnusérfræðingur Sky Sports, Jamie Carragher, missti stjórn á sér á hraðbraut á Englandi eftir tap Liverpool gegn Man. Utd um nýliðna helgi.

Þá var fólk í næsta bíl aðeins að stríða honum á úrslitunum en Carragher er fyrrum leikmaður Liverpool. Carragher svaraði fyrir sig með því að hrækja í átt að bílnum.

Slumman fór framan í fjórtán ára gamla dóttur bílstjórans. Málið hefur eðlilega vakið mikla athygli enda ótrúleg framkoma hjá Carragher sem ætti að vera ýmsu vanur.





Eins og kemur fram í tístinu hér að ofan hefur Carragher beðið fjölskylduna afsökunar á framferði sínu.

Hann reyndi þó að afsaka sig með því að fólkið í bílnum hefði ítrekað keyrt upp að sínum bíl til þess að stríða honum. Á endanum hefði hann sprungið.

Sky mun setjast niður með Carragher í dag og ræða stöðuna. Þessa ótrúlegu uppákomu má sjá hérna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×