Lífið

Pítsusendill sem gekk inn í mjög sérstakar aðstæður

Stefán Árni Pálsson skrifar
Ekki beint þægilegt hús að heimsækja sem pizzasendill.
Ekki beint þægilegt hús að heimsækja sem pizzasendill.
Jimmy Kimmel gefur frænda sínum Sal oft á tíðum skemmtileg verkefni og tengjast þau oftast földum myndavélum í heimahúsi.

Að þessu sinni var ákveðið að hrekkja pítsasendil á mjög svo frumlegan hátt. Sal fékk pítsasendil heim til sín og voru þá tveir aðrir sendlar mættir á staðinn.

Sal hafði bara pantað pítsur frá fyrirtækjum sem segjast vera með bestu pítsurnar í borginni.

Skuggalegur maður tekur síðan sendlana afsíðis og virðist leggja hendur á þá. Líklega er óþarfi að útskýra hrekkinn betur en hér að neðan má sjá útkomuna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×