Lífið

Ronaldo segir Íslandsdvölina „magnaða“

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Parið nýtur lífsins á Íslandi.
Parið nýtur lífsins á Íslandi. Instagram/Cristiano Ronaldo
Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo birti fyrstu mynd af Íslandsdvöl sinni í kvöld en hann er staddur hér á landi ásamt Georginu Rodriguez, kærustu sinni.

Á myndinni, sem Ronaldo birti á Instagram-reikningi sínum, sjást skötuhjúin í faðmlögum í heitum potti með snævi þakin fjöll í bakgrunni. „Magnaður dagur,“ skrifar Ronaldo við myndina en greinilegt er að parið nýtur lífsins á ferðalaginu.

Þá birti Rodriguez enn eina mynd frá Íslandsdvölinni á Instagram-reikningi sínum en þar má sjá parið í þyrlu. Þeim virðist hafa líkað flugferðin vel en Ronaldo er með báða þumla á lofti á myndinni. Rodriguez hefur verið iðin við myndbirtingar á Instagram í dag en parið hefur m.a. skellt sér á vélsleða og fengið sér kaffi í kuldanum.

Óvíst er hvenær skötuhjúin komu hingað til lands eða hversu lengu þau muni dvelja, en næsti leikur Real Madrid, félagsliðs Ronaldo er gegn Girona á sunnudaginn.

Amazing day

A post shared by Cristiano Ronaldo (@cristiano) on


Tengdar fréttir

Cristiano Ronaldo og frú í fríi á Íslandi

Knattspyrnukappinn Cristiano Ronaldo, einn þekktasti knattspyrnumaður heims, er staddur á Íslandi. Er hann hér á ferð með Georginu Rodriguez, kærustu hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×